Haldinn mánudaginn 14. desember kl. 10:00


Stjórn HS Orku hf hefur ákveðið að boða til hluthafafundar mánudaginn 14.
desember 2009 kl. 10:00 í Eldborg í Svartsengi. 

Á dagskrá fundarins verða breytingar á á samþykktum félagsins þannig að fækkað
verði í stjórn úr 7 mönnum í 5 og frestur til að nýta forkaupsrétt styttur úr
tveimur mánuðum í einn. Þá óskar stjórn eftir heimild til þess að auka hlutafé
félagsins um allt að ISK. 1.000.000.000 að nafnvirði með áskrift nýrra hluta og
að stjórnin ákveði útboðsgengi og greiðslukjör. 

Nánari upplýsingar veitir Júlíus Jónsson, forstjóri HS Orku hf, í síma 422
5208/ 860 5208.