- Yfirlýsing peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands


Hægfara slökun peningalegs aðhalds heldur áfram

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að breyta vöxtum bankans
sem hér segir: Vextir á viðskiptareikningum innlánsstofnana lækka um 0,5
prósentur í 8,5%.  Seðlabankinn mun áfram efna til útboða á innstæðubréfum til
28 daga með 9,75% hámarksvöxtum, en í því felst 0,5 prósentna lækkun
hámarksvaxta innstæðubréfa. Vextir á lánum gegn veði til sjö daga verða
lækkaðir um 1 prósentu í 10% og daglánavextir um 1,5 prósentur í  11,5%. 

Í yfirlýsingu peningastefnunefndarinnar hinn 5. nóvember sagði að héldist gengi
krónunnar stöðugt eða styrktist og verðbólga hjaðnaði í samræmi við spá
bankans, ættu forsendur fyrir frekari slökun peningalegs aðhalds fljótlega að
vera til staðar. Vaxtaákvörðunin nú felur í sér lítils háttar peningalega
slökun, í samræmi við yfirlýsingu nefndarinnar í nóvember, og færir
vaxtaganginn nær vöxtum sem í reynd hafa ráðið aðhaldi peningastefnunnar. 

Útboð innstæðubréfa til 28 daga í því skyni að draga úr lausafé í umferð hafa
skilað tilætluðum árangri. Framvegis mun peningastefnunefndin einungis ákveða
hámarksvexti í útboðum innstæðubréfa á næsta vaxtatímabili. Einum viðskiptadegi
fyrir hvert útboð mun Seðlabankinn, á grundvelli lausafjáráætlunar bankans,
tilkynna fjárhæð innstæðubréfa sem boðin verða út. 

Gengi krónunnar hefur í meginatriðum haldist stöðugt frá síðasta fundi
peningastefnunefndar, með takmörkuðum inngripum Seðlabanka og engum frá byrjun
nóvembermánaðar. Þéttari reglugerð, aukið eftirlit og virkari framfylgd reglna
hafa leitt til þess að erfiðara er að fara í kringum gjaldeyrishöftin en áður.
Þótt ytri skilyrði hafi batnað er áfram umtalsverð óvissa um
skammtímahreyfingar fjármagns. Inngripastefnan á gjaldeyrismarkaði miðar að því
að draga úr sveiflum gengis sem þeim kunna að fylgja. 

Verðbólga hjaðnaði áfram í nóvember, í samræmi við síðustu spá Seðlabankans.
Ársverðbólga var 8,6%, eða 7,7% ef leiðrétt er fyrir áhrifum hækkunar
neysluskatta. Að mati peningastefnunefndarinnar er hætta á annarrar umferðar
áhrifum á verðbólgu takmörkuð og verðbólgan í meginatriðum drifin áfram af
gengisbreytingum. Hve hratt hún hjaðnar mun því að mestu leyti ráðast af þróun
gengis krónunnar á næstunni. Haldist gengi hennar stöðugt eða styrkist, og
verðbólga hjaðnar eins og spáð er, ættu forsendur fyrir frekari slökun
peningalegs aðhalds að vera áfram til staðar. Eins og ávallt, er
peningastefnunefndin reiðubúin til að breyta aðhaldi peningastefnunnar eins og
nauðsynlegt er með hliðsjón af því tímabundna markmiði hennar að stuðla að
gengisstöðugleika, og í því skyni að tryggja að verðbólga verði nálægt markmiði
til lengri tíma litið. 
GlobeNewswire