Endurflokkun félaga í kauphöllum NASDAQ OMX Nordic eftir markaðsvirði


Félög í meðfylgjandi viðhengi munu færast til á milli flokka eftir markaðsvirði
þann 4. Janúar 2010. 

Félög tilheyra flokkum eftir markaðsvirði („Lítil“ = Small Cap, „Meðalstór“ =
Mid Cap og „Stór“ = Large Cap) og er miðað við meðalmarkaðsvirði þeirra í
mánuði endurskoðunar. Félög með markaðsvirði sem nemur 1 milljarði evra eða
meira tilheyra „stórum“ félögum, á meðan félög með markaðsvirði sem nemur minna
en 150 milljónum evra tilheyra „litlum“ félögum. Félög með markaðsvirði sem
nemur 150 milljónum evra til eins milljarðs evra tilheyra „meðalstórum“
félögum. 

Næsta endurflokkun á félögum mun eiga sér stað í janúar 2011 og verður þá miðað
við markaðsvirði félaga í nóvember 2010. 


Frekari upplýsingar gefur Kristín Rafnar skráningarsviði Kauphallarinnar, sími
525-2800 eða Corporate Client Group/Market Research, í síma + 46 8 405 60 00.

Attachments

segment report.xls
GlobeNewswire