Rannveig Rist hefur tekið við formennsku í stjórn Skipta hf. Þetta var ákveðið á fundi stjórnar Skipta fyrr í dag. Með formennsku Rannveigar er tryggð samfelldni í stjórn fyrirtækisins en hún hefur mikla reynslu og þekkingu á rekstri þess. Rannveig hefur setið í stjórn Skipta og Símans frá árinu 2002 þegar fyrirtækið var í eigu íslenska ríkisins. Hún var formaður stjórnar frá 2002 til 2005 en hefur síðan verið varaformaður stjórnar. Lýður Guðmundsson lætur nú af formennsku en mun sitja áfram í stjórn Skipta.
Recommended Reading
-
Síminn hf. mun birta uppgjör sitt fyrir fjórða ársfjórðung 2025 á morgun, þriðjudaginn 17. febrúar.Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 18....
Read More -
Vísað er til tilkynningar Símans hf. þann 3. nóvember 2023 þar sem fjallað var um ákvörðun fjármálaeftirlitsnefndar Seðlabanka Íslands, dags. 31. október 2023, um að sekta Símann hf. um 76,5 m.kr. í...
Read More