Matsfyrirtækið Moody's greindi frá því í dag, 23. apríl 2010, að það hefði breytt horfum á lánshæfismati Íbúðalánasjóðs, sem er Baa3, í stöðugar úr neikvæðum. Breyting á horfum um lánshæfismat Íbúðalánasjóðs er gerð í kjölfar breytingar á horfum um lánshæfismat ríkissjóðs Íslands í stöðugar úr neikvæðum. Sjá nánari umfjöllun í viðhengi.