Á aðalfundi Hampiðjunnar hf. sem haldinn var 21. maí, var skýrsla stjórnar og ársreikningur fyrir árið 2009 samþykkt samhljóða. Sjálfkjörið var í félagsstjórn. Formaður félagsstjórnar: Bragi Hannesson Meðstjórnendur: Árni Vilhjálmsson Jón Guðmann Pétursson Kristján Loftsson Sigurgeir Guðmannsson Eftirfarandi tillögur stjórnar Hampiðjunnar voru samþykktar samhljóða: 1. Tillaga um greiðslu arðs. Aðalfundur Hampiðjunnar hf. haldinn 21. maí 2010 samþykkir að greiddur verði 12% arður vegna ársins 2009, alls að fjárhæð kr. 59.591.167. Arðurinn verði greiddur í viku 23. Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 21. maí., þ.e. viðskipti sem fara fram á þeim degi koma fram í hlutaskrá félagsins á arðsréttindadeginum 27. maí. Arðleysisdagurinn er 25. maí. 2. Tillaga um þóknanir fyrir liðið starfsár. Aðalfundur Hampiðjunnar hf. samþykkir að þóknun til stjórnarmanna fyrir liðið ár verði kr. 700.000, formaður taki þrefaldan hlut. 3. Tillaga um endurskoðunarfélag. Aðalfundur Hampiðjunnar hf. kýs PricewaterhouseCoopers hf. endurskoðunarfélag félagsins. 4. Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutabréfum. Aðalfundur Hampiðjunnar hf. haldinn 21. maí 2010 veitir stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu. Heimild þessi stendur í 18 mánuði og takmarkist við að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. Kaupverð hluta skal vera hæst 15% yfir síðasta þekktu söluverði á First North markaðinum áður en kaup eru gerð.
Recommended Reading
-
Aðalfundur Hampiðjunnar hf. verður haldinn að Skarfagörðum 4, Reykjavík, föstudaginn 20. mars 2026 og hefst klukkan 16:00. Á dagskrá fundarins verður: 1. Skýrsla stjórnar félagsins um...
Read More -
Á vettvangi félagsins er nú unnið að uppgjöri fjórða ársfjórðungs 2025 og gerð ársreiknings. Drög að uppgjöri benda til að velta samstæðu Hampiðjunnar hafi numið tæpum 360 m€ á árinu 2025 sem er...
Read More