Útboð RVK 09 1


Reykjavíkurborg hefur ákveðið að efna til útboðs til stækkunar á
skuldabréfaflokki með auðkennið RVK 09 1. Reykjavíkurborg stefnir að því að
taka tilboðum að fjárhæð 2.500 milljónir króna að nafnvirði. Ávöxtunarkrafa í
útboðinu verður 3,90%. 
  
Reykjavíkurborg stækkaði RVK 09 1 um 2.550 mkr. að nafnvirði fyrr á árinu og er
heildarstærð flokksins fyrir þetta útboð alls 7.750 mkr. 
Heimilt er að stækka skuldabréfaflokkinn um allt að 5.800 mkr á árinu. 
  
Umsjón með sölu skuldabréfanna hefur MP banki. 
  
Óskað er eftir tilboðum í samræmi við útboðsskilmála í fylgiskjali: 
  
Nánari upplýsingar gefur: 
Birgir Björn Sigurjónsson 
Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar 
Sími: 693-9321

Attachments

utbosskilmalar.pdf vbs_ rvk_09_1_utgafulysing.pdf
GlobeNewswire