Útboð á verðtryggðum ríkisbréfum í flokki RIKS 21 0414 með tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að bjóðendum buðust öll samþykkt tilboð á sama verði. Hæsta samþykkta ávöxtunarkrafa ákvarðaði söluverðið. Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar: Alls bárust 15 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 3.048 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 1.548 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 103,45 (3,41% ávöxtunarkröfu). Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 29. júní. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 30. júní 2010.
Recommended Reading
-
SeriesRIKV 27 0217RIKV 27 0519ISINIS0000039535IS0000039857Maturity Date02/17/202705/19/2027Auction Date11/16/202611/16/2026Settlement Date11/18/202611/18/2026 On the Auction Date, between 10:30 am and...
Read More -
The size of the RIKB 27 0415 series after the exchange auction on November 6, 2026, is 121,274,783,928 kr. nominal value. ...
Read More