Gengið var formlega frá kaupum Magma Energy á ríflega 38% hlut Geysis Green Energy í HS Orku hf. í dag. Ásgeir Margeirsson, forstjóri Magma á Íslandi,segir að ekki hafi verið hægt að bíða lengur eftir nefnd stjórnvalda um kaupin án þess að baka fyrirtækinu skaðabótaábyrgð gagnvart seljanda. Magma á nú að fullu ríflega 84% hlut í HS Orku.