Tap N1 hf. fyrir tímabilið 01.01.2010 - 30.06.2010 er 191 millj. kr. eftir skatta. Veltufé frá rekstri nam 298 millj. kr. en var 1.155 millj. kr. fyrir sama tímabil á fyrra ári. Eigið fé félagsins er tæpir 6,5 milljarðar þann 30.06.2010. Sjá lykilstærðir í viðhengi Árshlutareikningur N1 hf. þann 30.06.2010 hefur verið staðfestur af stjórn félagsins og forstjóra. Árshlutareikningurinn er byggður á alþjóðlegum reikningsskilastöðlum (IFRS) og hefur samanburðarfjárhæðum verið breytt til samræmis við nýjar reikningsskilareglur. Rekstur Rekstrartekjur félagsins nema 21.945 millj. kr. samanborið við 17.215 millj. kr. fyrir sama tímabil árið 2009. Hagnaður fyrir afskriftir og leigugjöld nemur 1.054 millj kr. samanborið við 1.897 millj fyrir sama tímabil ári 2009. Rekstrartap tímabilsins nam 191 millj. kr á móti 474,2 millj. kr. hagnaði fyrir sama tímabil árið áður. Helstu breytingar á milli ára eru fólgnar í verulegum samdrætti í eldsneytissölu og margna vikna verðstríði á neytendamarkaði. Fjármagnsliðir eru neikvæðir um 520,5 millj. kr. og voru einnig neikvæðir um 587,8 millj. kr. fyrir sama tímabil árið 2009. Eignir Bókfært verð eigna félagsins í lok tímabilsins nam 25.765 millj. kr. samanborið við 25.292 millj. kr. í árslok 2009. Fastafjármunir standa nánast í stað á tímabilinu og nema 12.012 millj. kr. lok þess. Veltufjármunir hafa aukist úr 13.301 millj. kr.í 13.753 millj. kr. Eigið fé Eigið fé þann 30. júní 2010 nam 6.447 millj. kr. samanborið við 6.638 millj. kr. þann 31.12.2009. Skuldir Í lok tímabilsins námu heildarskuldir félagsins 19.318 millj. kr. Staða og horfur Rekstrarhorfur út árið eru áfram erfiðar vegna óvissu í efnahagsmálum. Nánast öllum stórum verklegum framkvæmdum er lokið og verk sem hafa verið undirbúin hafa tafist ítrekað. Óvissa ríkir um rekstrargrundvöll sjárvarútvegsfyrirtækja sem er einn mikilvægasti viðskiptamannahópur félagsins. Kaupmáttur almennings hefur dregist mikið saman og mestar líkur eru á að sú þróun haldi áfram. Almennir kjarasamningar eru lausir nú í haust, og ekki er útilokað að vinnudeilur verði viðvarandi næstu mánuði. Nánari upplýsingar veita Hermann Guðmundsson forstjóri og Elías Bjarni Guðmundsson framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 440 1000