Flutningsmaður tillögu um vantraust á endurskoðanda félagsins og tillögu um að nýr endurskoðandi verði kjörinn hefur dregið hana til baka með eftirfarandi yfirlýsingu: „Undirritaður dregur framkomna tillögu undir liðnum önnur mál á hluthafafundi Icelandair Group 15. september 2010 til baka. Í ljósi þess að nýir eigendur eru komnir að félaginu og fjárhagslegri endurskipulagningu að mestu lokið telur undirritaður að frekari umfjöllun um framkomna tillögu ekki til þess fallna að þjóna hagsmunum félagsins og hluthöfum þess á þessum tíma. Í ljósi þessa dregur undirritaður tillögu sína til baka. Vilhjálmur Bjarnason Hluthafi“ Endanleg dagskrá er því svo: 1. Kjör stjórnar og varastjórnar skv. 5. gr. samþykkta félagsins