Íslenska lánshæfismatsfyrirtækið Reitun ehf. hefur gefið út nýtt lánshæfismat fyrir Kópavogsbæ. Í uppfærðu mati segir að þrátt fyrir að vera annað stærsta sveitarfélag landsins og eitt það öflugasta í landinu, hafi aukning skulda í kjölfar efnahagshrunsins þau áhrif að Kópavogsbær er með lánshæfiseinkunnina B með jákvæðum horfum. Reitun telur það jákvætt takist Kópavogi að endurfjármagna afborgunarþörf næstu ára. Kópavogsbær er eina sveitarfélagið sem gert hefur samkomulag við Reitun um mat á lánshæfi. Þetta er í annað sinn sem Reitun gefur út skýrslu um lánshæfi bæjarins. Sjá nánar meðfylgjandi skýrslu um lánshæfi Kópavogsbæjar.
Recommended Reading
-
Fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2027 var lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn í dag, þriðjudaginn 10. nóvember. Áætlunin byggir á ábyrgri fjármálastjórn og áframhaldandi uppbyggingu, með...
Read More -
Árshlutareikningur Kópavogsbæjar fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2026 var lagður fram í bæjarráði Kópavogs í dag, fimmtudaginn 10. september. Rekstrarniðurstaða samstæðu Kópavogsbæjar, A- og...
Read More