Fréttatilkynning frá Össuri hf. nr. 20/2010
Reykjavík, 25.október 2010
GÓÐUR ÁRANGUR
Sala - Söluvöxtur á þriðja ársfjórðungi var 7% mælt í staðbundinni mynt. Salan nam alls 87 milljónum Bandaríkjadala samanborið við 84 milljón dala á þriðja ársfjórðungi í fyrra. Góð Söluaukning var á spelkum og stuðningsvörum eða um 12%, mælt í staðbundinni mynt. Sala á stoðtækjum jókst um 3%, mælt í staðbundinni mynt.
Arðsemi - EBITDA framlegð nam 19 milljónum Bandaríkjadala eða 22% af sölu. Framlegð nam 54 milljónum dala eða 62% af sölu. Framlegð er áfram stöðug. Hagnaður á tímabilinu nam 4 milljónum Bandaríkjadala samanborið við 5 milljónir dala á sama tímabili í fyrra. Neikvæð gengisáhrif á fjármagnsliði höfðu töluverð áhrif á hagnað.
Jón Sigurðsson, forstjóri:
"Sala á spelkum og stuðningsvörum heldur áfram að vera góð og þá sérstaklega í Bandaríkjunum. Mikið af nýjum vörum hefur komið út á árinu og við erum ánægð með að nýjar spelkur og stuðningsvörur hafa jákvæð áhrif á söluvöxt á fjórðungnum. Meðal nýrra vara sem voru kynntar á fjórðungnum er PROPRIO FOOT sem er önnur varan í Bionic vörulínu Össurar. Bionic vörulínan hefur skapað spennu og eftirvæntingu á markaðnum og erum við staðföst í að þróa þessa vörulínu enn frekar."
Helstu áfangar á fjórðungnum:
- PROPRIO - Á fjórðungnum var gerviökklinn Proprio settur á markað. Proprio er önnur varan í Bionic vörulínunni sem er kynnt á markaðinum. Proprio er fyrsta vara sinnar tegundar og því þarf Össur að ryðja veginn og undirbúa markaðinn. Sala á Proprio á þriðja og fjórða ársfjórðungi þessa árs mun ekki hafa veruleg áhrif á heildarsölu félagsins.
- Spelkur og stuðningsvörur - Söluvöxtur á spelkum og stuðningsvörum hefur verið yfir markaðsvexti. Jákvæð merki um vöxt í Bandaríkjunum staðfesta að aukin fjárfesting í sölukerfi í Bandaríkjunum er að skila sér. Nýjar spelkur og stuðningsvörur, eins og Miami Lumbar og Rebound Walker, hefur verið vel tekið og hafa jákvæð áhrif á vöxt.
Áætlun - Stjórnendur gera ráð fyrir að söluaukning verði í takt við upprunalegu áætlun félagsins, sem gerir ráð fyrir 4-6% innri vexti á árinu, mælt í staðbundinni mynt. Nú er gert ráð fyrir 5-7% innri EBITDA vexti, mælt í staðbundinni mynt.
Símafundur þriðjudaginn 26. október kl. 10:00
Á morgun þriðjudaginn 26. október, verður haldinn símafundur fyrir fjárfesta, hluthafa og aðra markaðsaðila þar sem farið verður yfir niðurstöður 3. ársfjórðungs 2010. Fundurinn hefst kl. 10:00 GMT / 12:00 CET / 6:00 EST. Á fundinum munu þeir Jón Sigurðsson, forstjóri, og Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri, kynna afkomu félagsins og svara spurningum. Fundurinn fer fram á ensku og verður hægt að fylgast með honum á netinu á slóðinni www.ossur.com/investors
Símanúmer til að taka þátt í fundinum eru:
Evrópa: + 44 (0) 20 3043 2436 eða
+46(0)8 505 598 53
Bandaríkin: +1 866 458 40 87
Ísland: 800 8660
Nánari upplýsingar: | |
Jón Sigurðsson, forstjóri | sími: 515-1300 |
Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri | sími: 515-1300 |
Sigurborg Arnarsdóttir, fjárfestatengill | sími: 664-1044 |
Vinsamlega athugið að þetta yfirlit nær aðeins yfir helstu þætti uppgjörsins.
Tilkynningu í fullri lengd á ensku er að finna á www.ossur.com/investors