Vextir Seðlabankans lækkaðir


Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans.
Vextir á viðskiptareikningum innlánsstofnana lækka um 0,5 prósentur í 3,5% og
hámarksvextir á 28 daga innstæðubréfum og á lánum gegn veði til sjö daga lækka
um 1,0 prósentu í 4,25% og 4,5%. Þá lækka daglánavextir um 1,5 prósentur í
5,5%.