Í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2011 kemur fram að Reykjavíkurborg áætlar lántökur að fjárhæð 6.300 mkr vegna framkvæmda. Stærð skuldabréfaflokksins RVK 09 1 er 9.330 mkr að nafnverði.
Borgarráð samþykkti á fundi sínum þann 27 janúar eftirfarandi tillögu að útgáfuáætlun vegna stækkunar skuldabréfaflokksins RVK 09 1 á árinu 2011.
Borgarráð samþykkir heimild til fjármálastjóra á grundvelli samþykktar borgarstjórnar frá 30. nóvember 2010 um að taka allt að 1.000 milljóna króna lán í janúar 2011 með stækkun á verðtryggðum skuldabréfaflokki Reykjavíkurborgar RVK 09 1 ef ásættanleg kjör eru í boði. Þá er lagt til að borgarráð staðfesti útgáfuáætlun fyrir skuldabréfaflokk Reykjavíkurborgar RVK 09 1 á fyrri hluta árs 2011 sem taki mið af eftirfarandi vikum eða viðmiðunardagsetningum (í sviga): Febrúar: vika 8 (23.2.2011), mars: vika 12 (23.3.2011), apríl: vika 15 (15.4.2011), maí: vika 21 (25.5.2011) og júní: vika 24 (16.6.2011). Lántaka í hvert sinn nemi allt að 1.000 milljónum króna, enda sé á því þörf og ásættanleg kjör í boði.
Samþykkt, enda komi einstakar lántökur fyrir borgarráð til staðfestingar.
Nánari upplýsingar gefur:
Birgir Björn Sigurjónsson
Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar
Sími: 411-1111