Ársreikningur Langanesbyggðar fyrir árið 2010


 

Ársreikningur Langanesbyggðar fyrir árið 2010 var tekinn til fyrri umræðu í sveitarstjórn miðvikudaginn 18. maí 2011 og samþykkti sveitarstjórn að vísa ársreikningum til síðari umræðu. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn. Seinni umræða fer fram fimmudaginn 26. maí nk.

Ársreikningurinn hefur að geyma ársreikning fyrir þær rekstrareiningar sem falla undir A hluta starfsemi sveitarfélagsins og samantekinn ársreikning fyrir alla starfsemi þess þ.e. A og B hluta, sbr. 60 gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 45/1998

Til A hluta, þ.e. sveitarsjóðs, telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum, en auk aðalsjóðs er um að ræða Eignasjóð og Þjónustumiðstöð. Til B hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins, en rekstur þessarra fyrirtækja er fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B hluta starfsemi sveitarfélagsins eru Félagslegar íbúðir, Fráveita, Vatnsveita, Hafnarsjóður, Naust og Fræ ehf.

Samkvæmt rekstrarreikningi ársins 2010 námu rekstrartekjur A og B hluta 553,0 millj. kr. samanborið við 581,4 millj. kr. á árinu 2009. Lækkun milli ára nemur því um 4,9%.

Rekstrargjöld A og B hluta, þ.e. laun og launatengd gjöld, annar rekstrarkostnaður og afskriftir námu á árinu 542,2 millj. kr. en voru 576,1 millj. kr. á árinu 2009. Lækkun frá fyrra ári nemur 5,9%.

Veruleg breyting er á fjármunatekjum og fjármagnsgjöldum milli ára. Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur A og B hluta árið 2010 námu 25,3 millj. kr., samanborið við 56,8 millj. kr. á árinu 2008. Lækkun fjármagnsliða skýrist af hagstæðari verðlagsþróun en á fyrra ári.

Rekstrarhalli ársins nemur því 14,5 millj. kr. fyrir A og B hluta, samanborið við 41,8 millj. kr. rekstrarhalla á árinu 2009.

Frekari upplýsingar veitir:

Gunnólfur Lárusson, sveitarstjóri sveitarstjori@langanesbyggd.is, í síma 468 1220 eða 821-1646


Attachments

Arsreikningur Langanesbyggar 2010_18052011_arita.pdf