Ársreikningur Sandgerðisbæjar fyrir árið 2010


Sandgerðisbær – Lykiltölur árið 2010:  sjá viðhengi

 

Á 307. fundi bæjarstjórnar Sandgerðisbæjar þann 24. maí 2011 fer fram fyrri umræða um ársreikning Sandgerðisbæjar fyrir árið 2010. Þann 1. júní 2011 fer seinni umræðan fram.

Ársreikningur Sandgerðisbæjar er gerður í samræmi við sveitarstjórnarlög, lög um ársreikninga, reglugerð um bókhald og ársreikninga sveitarfélaga og auglýsingar ráðuneytis sveitarstjórnarmála um reikningsskil sveitarfélaga.

Starfsemi Sandgerðisbæjar er skipt í tvo hluta. Annars vegar A hluta sem er starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum og hins vegar B hluta sem eru fyrirtæki að hálfu eða meirihluta í eigu sveitarfélagsins og eru rekin sem fjárhagslega sjálfstæðar einingar.

Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu 2010 námu 1.190,7 millj. kr. en á árinu 2009 urðu þær 1.165,0  millj. kr. samkvæmt ársreikningi fyrir A og B hluta. Fyrir A hluta námu rekstrartekjur árið 2010 1.035,2 millj. kr. en 1.045,0 millj. kr. fyrir árið 2009. Álagningarhlutfall útsvars var 12,7% en lögbundið hámark þess er 13,28%.

Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins, samkvæmt samanteknum ársreikningi A og B hluta, var neikvæð um 64,1 millj. kr., en í A hluta neikvæð um 63,1 millj. kr. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2010 nam 1.159,9 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi, en eigið fé A hluta 1.884,2 millj. kr.

Samkvæmt samanteknum ársreikningi A og B hluta eru fastafjármunir á árinu 2010, 4.849 millj. kr. og eignir eru samtals 6.575 millj.kr. Skuldir og skuldbindingar eru samtals 5.415 millj.kr. að meðtöldum leiguskuldbindingum sem nema 2.542 millj.kr. Skuldir við lánastofnanir eru í árslok 2010 1.935 millj. kr. Handbært fé í árslok var 1.576 millj.kr.

Laun og launatengd gjöld hjá samstæðunni voru 700,2 millj. kr. Fjöldi starfsmanna var 152 á árinu í 126 stöðugilum. Skatttekjur sveitafélagsins voru 541 þús. kr. á hvern íbúa.

Á árinu 2010 voru helstu framkvæmdir þær að byggt var við Miðhús, félagsmiðstöð aldraðra, og áfram unnið við gatnagerð og sjóvarnir.

Eignarhaldsfélagið Fasteign keypti af Sandgerðisbæ nýbyggingu grunnskólans á árinu 2010 og á þá allar byggingar grunnskólans, íþróttahúsið og Samkomuhúsið.

 

 


Attachments

Arsreikningur Sandgerisbr 2010 undirritaur.pdf Sandgerisbr-Frettatilkynning 2010.pdf
GlobeNewswire