Reykjavíkurborg hefur ákveðið að efna til útboðs þann 24. ágúst 2011 til stækkunar á skuldabréfaflokki með auðkennið RVK 09 1.
Reykjavíkurborg stefnir að því að taka tilboðum að fjárhæð 1.000 milljónir króna að nafnvirði. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að hækka eða lækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum.
Útboðið verður með því fyrirkomulagi að samþykkt tilboð bjóðast á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) mun ákvarða söluverð.
Heildarstærð flokksins fyrir þetta útboð nemur alls 11.770 m.kr. að nafnvirði. Heimild til stækkunar á árinu 2011 er 6.300 m.kr. að nafnvirði. Flokkurinn hefur verið stækkaður um 2.440 m.kr. það sem af er árinu 2011.
Uppgjör sölu fer fram mánudaginn 29. ágúst 2011.
Umsjón með sölu skuldabréfanna hafa Íslandsbanki, MP banki og Saga Fjárfestingarbanki.
Óskað er eftir tilboðum í samræmi við útboðsskilmála í fylgiskjali:
Nánari upplýsingar gefur:
Birgir Björn Sigurjónsson
Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar
Sími: 693-9321
Recommended Reading
-
Samþykkt tilboð í RVKN 35 1 voru 810 m.kr. en í fyrri tilkynningu var 811 m.kr. Reykjavíkurborg hefur lokið útboði í skuldabréfaflokkunum RVK 44 1 og RVKN 35 1. Heildartilboð í RVK 44 1 voru samtals...
Read More -
Reykjavíkurborg hefur lokið útboði í skuldabréfaflokkunum RVK 44 1 og RVKN 35 1. Heildartilboð í RVK 44 1 voru samtals 2.660 m.kr. að nafnvirði á kröfubilinu 3,55%-3,66%. Ákveðið var að taka...
Read More