Yfirlýsing peningastefnunefndar 2. nóvember 2011


 

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Vextirnir verða sem hér segir:

 

Daglánavextir  5,75%
Vextir af lánum gegn veði til sjö daga 4,75%
Hámarksvextir á 28 daga innstæðubréfum 4,5%
Innlánsvextir 3,75%

 

Nýjustu hagtölur og spá Seðlabankans, sem birtist í Peningamálum í dag, staðfesta að efnahagsbatinn hefur haldið áfram, þrátt fyrir að það dragi úr hagvexti í heiminum og óvissa hafi aukist. Gert er ráð fyrir að hagvöxtur verði nokkru meiri í ár og á næsta ári en spáð var í ágúst og að verðbólga verði heldur minni á næstu misserum sakir sterkara gengis krónunnar og minni innfluttrar verðbólgu.

Veruleg óvissa ríkir um þann feril nafnvaxta sem þarf til þess að ná verðbólgumarkmiðinu. Í ljósi efnahagshorfa, áframhaldandi styrkingar gengis krónunnar og hugsanlega óhagstæðrar alþjóðlegrar efnahagsþróunar virðist núverandi vaxtastig um það bil við hæfi á komandi mánuðum. Horft lengra fram á veginn verður hins vegar nauðsynlegt að draga úr núverandi slaka peningastefnunnar eftir því sem efnahagsbatanum vindur fram og dregur úr slaka í þjóðarbúskapnum. Að hve miklu leyti þessi aðlögun á sér stað með hærri nafnvöxtum fer eftir framvindu verðbólgunnar.

GlobeNewswire