Endurskoðun samsetningar OMX Iceland 6 vísitölunnar


Reykjavík, 13. desember, 2011 - NASDAQ OMX Group, Inc. (NASDAQ:NDAQ) tilkynnti í dag um endurskoðun á OMX Iceland 6 vísitölunni (NASDAQ OMX Iceland: OMXI6ISK). Endurskoðuð samsetning tekur gildi við opnun markaða 2. janúar 2012.

Hlutabréf Haga hf. koma ný inn í vísitöluna í stað Atlantic Airways P/F. Valið er gert með fyrirvara um samþykki á töku hlutabréfa Haga hf. til viðskipta.

OMX Iceland 6 vísitalan er Úrvalsvísitala NASDAQ OMX Iceland. Vísitalan er samsett af þeim 6 félögum sem mest viðskipti eru með á NASDAQ OMX Iceland. Vægi félaga í OMX Iceland 6 vísitölunni ræðst af flotleiðréttu markaðsvirði og er samsetningin endurskoðuð tvisvar á ári. 

Samsetning OMX Iceland 6 vísitölunnar frá og með 2. janúar 2012 verður sem hér segir:

Atlantic Petroleum P/F

BankNordik P/F

Hagar hf.

Icelandair Group hf.

Marel hf.

Össur hf.

 

- # -

 

Um vísitöluvörur NASDAQ OMX

NASDAQ OMX er leiðandi á heimsvísu í gerð og leyfisveitingu á vísitölum og eru vísitölur fyrirtækisins meðal þeirra sem mest er fylgst með í heiminum. Hluti af fyrsta flokks þjónustu NASDAQ OMX er að þróa öflugar vísitölur sem stöðugt eru í takt við síbreytilegt markaðsumhverfi. Sem alþjóðlegt fyrirtæki á NASDAQ OMX nærri 1500 mismunandi hlutabréfa-, hráefnis- og skuldabréfavísitölur í Bandaríkjunum, Evrópu og um heim allan. Að auki veitir þjónusta okkar í útreikningum, leyfisveitingum og markaðssetningu viðskiptavinum okkar þau tól sem nauðsynleg eru til að fylgjast með og líkja eftir mörkuðum heimsins.. Vísitölusvið NASDAQ OMX veitir þjónustu á öllum stigum viðskiptaferilsins, frá hönnun vísitölu, til útreiknings og dreifingar. Nánari upplýsingar um vísitölur NASDAQ OMX má finna á: https://indexes.nasdaqomx.com/.

 

Um NASDAQ OMX

NASDAQ OMX Group, Inc. er stærsta kauphallarfyrirtæki heims. Það veitir viðskipta- og kauphallarþjónustu sem og almenna fyrirtækjaþjónustu í sex heimsálfum og með yfir 3.600 félög í viðskiptum er það í fararbroddi stærstu markaða heims. NASDAQ OMX býður félögum um allan heim upp á fjölda fjármögnunarkosta, þar á meðal U.S. listings market, NASDAQ OMX Nordic, NASDAQ OMX Baltic, NASDAQ OMX First North, og 144A geirann. Fyrirtækið  býður upp á viðskipti með fjölda eignaflokka, svo sem hlutabréf, afleiður, skuldabréf, hrávörur, samsettar vörur og kauphallarsjóði. NASDAQ OMX upplýsingatækni styður starfsemi rúmlega 70 kauphalla, greiðslustofnana og verðbréfamiðstöðva í yfir 50 löndum. NASDAQ OMX Nordic og NASDAQ OMX Baltic eru ekki lögaðilar en hugtakið lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq OMX kauphallanna í Helsinki, Kaupmannahöfn, Stokkhólmi, Íslandi, Tallinn, Ríga og Vilníus. Nánari upplýsingar um NASDAQ OMX eru á (http://www.facebook.com/nasdaqomx) og Twitter (http://www.twitter.com/nasdaqomx).

 

Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur

 

Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu NASDAQ OMX. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem NASDAQ OMX hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu NASDAQ OMX á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur. Engin trygging er fyrir því að verðbréfaeftirlitið muni veita NASDAQ OMX aðila það vald og leyfi sem hann kynni að sækja.

 

 

- # -

Fjölmiðlar:  
Kristín Jóhannsdóttir
+354 525 2844

kristin.johannsdottir@nasdaqomx.com

 

NDAQF


Attachments

GlobeNewswire