Reykjavík, 25. janúar, 2012 - NASDAQ OMX Iceland (Kauphöllin) tekur árlega saman yfirlit eftirlitsmála. Kauphöllin afgreiddi samtals 78 mál á síðasta ári, þar af var 20 málum vísað til Fjármálaeftirlitsins (FME) til frekari skoðunar.
Af málunum 78 afgreiddi Kauphöllin 60 mál vegna gruns um brot á reglum um upplýsingagjöf félaga á markaði (upplýsingarskyldueftirlit) en 18 mál sem lutu að viðskiptum með verðbréf (viðskiptaeftirlit). Mál vegna gruns um brot á reglum um upplýsingagjöf félaga á markaði voru afgreidd með mismunandi hætti; með athugasemdum (20), óopinberri áminningu (9) og opinberri áminningu og févíti (7). Þá voru átta mál áframsend til FME. Tilmælum var beint til útgefanda í tveimur málum en 14 mál voru felld niður. Af þeim málum sem lutu að viðskiptum með verðbréf var eitt mál afgreitt með athugasemd, eitt með óopinberri áminningu og eitt með opinberri áminningu. Tólf mál voru áframsend til FME til frekari skoðunar. Þrjú mál voru felld niður.
Fyrir upplýsingar um yfirlit eftirlitsmála hjá öllum NASDAQ OMX Nordic kauphöllunum sjá http://www.nasdaqomx.com/listingcenter/nordicmarket/surveillance/reports/
Um eftirlitshlutverk NASDAQ OMX Iceland
Eftirlit norrænu NASDAQ OMX kauphallanna skiptist í upplýsingaskyldueftirlit og viðskiptaeftirlit. Í meginatriðum byggir NASDAQ OMX Iceland sitt eftirlit á þeim viðmiðum sem eru í hinum norrænu kauphöllunum, þ.e. samræmdum reglum og kerfum. Samnorrænar reglur fyrir útgefendur hlutabréfa hafa verið í gildi frá árinu 2007. Sameiginlegar reglur gilda einnig um viðskipti kauphallaraðila í norrænu kauphöllunum. Við eftirlit með viðskiptum er notast við sameiginlegt rafrænt eftirlitskerfi. Eftirlitsstarfsemi Kauphallarinnar felst fyrst og fremst í því að fylgjast með því að útgefendur og kauphallaraðilar starfi í samræmi við kauphallalögin og reglur Kauphallarinnar. Fjármálaeftirlitið (FME) hefur eftirlit með framkvæmd laga um verðbréfaviðskipti en Kauphöllin gegnir ákveðnu eftirlitshlutverki á íslenska markaðnum skv. samstarfssamningi við FME og sendir mál til frekari athugunar til FME verði hún þess áskynja að lög á verðbréfamarkaði kunni að hafa verið brotin.
Tengiliður við fjölmiðla:
A. Kristín Jóhannsdóttir
s. 525 2844/868 9836
kristin.johannsdottir@nasdaqomx.com