Viðskiptayfirlit mars - NASDAQ OMX Iceland

Heildarvelta í mars 296 milljarðar


Reykjavík, 2. apríl, 2012 – NASDAQ OMX gefur út viðskiptayfirlit mánaðarlega frá kauphöllum sínum á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum. Helstu atriði úr viðskiptayfirliti NASDAQ OMX Iceland fyrir mars eru eftirfarandi: 

  • Heildarviðskipti með hlutabréf í mars námu 16.862 milljónum eða 766 milljónum á dag. Þessu til samanburðar nam veltan með hlutabréf í febrúar 3.844 milljónum eða 183 milljónum á dag. 
  • Mest voru viðskipti með bréf Marel 9.535 milljónir, með bréf Haga 4.824 milljónir, og með bréf Icelandair 1.304 milljónir.
  • Úrvalsvísitalan (OMXI6) hækkaði um 6,1% milli mánaða og stendur nú í 1040 stigum.
  • Landsbankinn með mestu hlutdeildina á Aðalamarkaði 59,3%, Arion banki með 23,4% og Íslandsbanki með 7,9%.
  • Heildarviðskipti með skuldabréf námu 279 milljörðum í síðasta mánuði sem samsvarar til 12,7 milljarða veltu á dag samanborið við 15,4 milljarða veltu á dag í febrúar.  Alls námu viðskipti með ríkisbréf 177 milljörðum en viðskipti með íbúðarbréf námu 95 milljörðum. 
  • MP banki var umsvifamestur á skuldabréfamarkaði með 21,5% hlutdeild, Landsbankinn var næstur með 20,7% og þá Íslandsbanki með 21,3%.

Fyrir frekari upplýsingar um tölfræði og tölfræðiáskrift sjá viðhengi og http://nordic.nasdaqomxtrader.com/newsstatistics/  

Um NASDAQ OMX

NASDAQ OMX Group, Inc. setti á fót fyrstu rafrænu kauphöllina og hefur ætíð verið frumkvöðull á sviði rafrænna viðskipta. Fyrirtækið eflir efnahagslíf með framsæknum tæknilausnum sem spanna allan viðskiptaferilinn – allt frá áhættustýringu til viðskipta, eftirlits og uppgjörs. Við starfrækjum 24 verðbréfamarkaði, 3 uppgjörshús og 6 verðbréfaskráningar í Bandaríkjunum og Evrópu, sem þjónusta viðskipti með hlutabréf, valrétti, skuldabréf, afleiður, hrávörur, framtíðarsamninga og samsettar vörur. Kerfi NASDAQ OMX geta afgreitt meira en 1 milljón skilaboða á sekúndu á hraða sem er innan við 80 míkrósekúndur á hvert skeyti og státa af 99,999% uppitíma. Þau þjóna meira en 70 kauphöllum í 50 þróuðum löndum og nýmarkaðslöndum og afgreiða 1 af hverjum 10 verðbréfaviðskiptum í heiminum. Verðlaunuð markaðsgögn og vísitölur okkar víðsvegar um heim eru lykilviðmið í fjármálageiranum. Um 3.400 fyrirtæki með heildarmarkaðsvirði í kringum 5,100 milljarða Bandaríkjadala eru skráð á NASDAQ OMX. Nýsköpun þessara fyrirtækja mótar samfélagið sem við búum í – þannig veitum við hugmyndum framtíðarinnar aðgang að fjármagni í dag. Nánari upplýsingar er að finna á www.nasdaqomx.com. Fylgist með okkur á Facebook (http://www.facebook.com/NASDAQ) og Twitter (http://www.twitter.com/nasdaqomx). (Auðkenni: NDAQ og í S&P 500 vísitölunni)

 

Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur

Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu NASDAQ OMX. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem NASDAQ OMX hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu NASDAQ OMX á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur. Engin trygging er fyrir því að verðbréfaeftirlitið muni veita NASDAQ OMX aðila það vald og leyfi sem hann kynni að sækja.

- # -

 

         NASDAQ OMX fjölmiðlatengill:
         Kristín Jóhannsdóttir
         
         kristin.johannsdottir@nasdaqomx.com
         868 9836/525 2844


Attachments