Yfirlýsing peningastefnunefndar 16. maí 2012


Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,5 prósentur.

Þjóðhagsspáin sem birtist í Peningamálum í dag staðfestir að batinn sem hófst síðla árs 2010 heldur áfram og nær til flestra sviða efnahagslífsins. Þróttur innlendrar eftirspurnar er töluverður og sjást skýr merki um bata á vinnu- og fasteignamarkaði. Fjármálaleg skilyrði einkageirans halda áfram að batna.

Horfur eru á ívið meiri hagvexti en í febrúarspá Seðlabankans. Verðbólga hefur hins vegar verið meiri en spáð var í febrúar og verðbólguhorfur hafa versnað, að nokkru leyti vegna þess að gengi krónunnar hefur verið veikara. Að öðru óbreyttu eru horfur á að verðbólga verði lengur fyrir ofan verðbólgumarkmið en spáð var í febrúar, einkum haldist gengi krónunnar áfram lágt.

Eftir því sem efnahagsbatanum vindur frekar fram og dregur úr slaka í þjóðarbúskapnum er nauðsynlegt að halda áfram að draga úr slaka peningastefnunnar. Að hve miklu leyti þessi aðlögun á sér stað með hærri nafnvöxtum Seðlabankans fer eftir framvindu verðbólgunnar. Dragi ekki úr verðbólgu á næstu mánuðum verður að óbreyttu ekki komist hjá frekari hækkun nafnvaxta svo að tryggja megi að verðbólga leiti á ný í markmið.

 

Vextir Seðlabanka Íslands verða eftir ákvörðunina sem hér segir:

 

Daglánavextir                 6,50%
Vextir af lánum gegn veði til sjö daga 5,50%
Hámarksvextir á 28 daga innstæðubréfum 5,25%
Innlánsvextir 4,50%

 

 

Þessi tilkynning er upprunalega birt á vefsetri Seðlabanka Íslands. Hún hefur ekki verið birt opinberlega á Evrópska efnahagssvæðinu af hálfu Seðlabanka Íslands, sbr. skilgreiningu laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti.

Vísað er til vefseturs Seðlabanka Íslands http://sedlabanki.is

GlobeNewswire