Árshlutareikningur RARIK fyrstu sex mánuði ársins 2012
Árshlutareikningur RARIK ohf 1. janúar til 30. júní 2012 var samþykktur af stjórn þann 28. ágúst.
Rekstarhagnaður af starfsemi RARIK fyrir fjármagnsliði (EBIT) á fyrri hluta ársins 2012 var 1.375 milljónir króna. Rekstrarafkoman var betri en á fyrri hluta ársins 2011 og hækkuðu rekstrartekjur um 11,8% frá fyrra ári, en rekstrargjöld með afskriftum um 2,9% og var regluleg starfsemi fyrirtækisins í samræmi við áætlanir.
Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 699 milljón króna á tímabilinu en voru á sama tímabili árið áður neikvæðir um 981 milljónir króna. Þessi breyting stafar m.a. af styrkingu krónunnar, en verðbólga var þó hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir.
Áhrif hlutdeildarfélags á rekstur voru jákvæð um 53 milljónir króna.
Samkvæmt yfirliti um heildarafkomu var hagnaður á tímabilinu 566 milljónir króna. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) var 1.995 milljónir króna eða um 36% af veltu tímabilsins, samanborið við 1.532 milljónir eða 31% af veltu á sama tímabili árið áður. Hreint veltufé frá rekstri var 1.975 milljónir króna samanborið við 1.531 milljón króna á sama tímabili árið 2011.
Samkvæmt efnahagsreikningi 30. júní 2012 voru heildareignir RARIK 37.163 milljónir króna og heildarskuldir námu 17.269 milljónum króna. Eigið fé var 19.894 milljónir króna og eiginfjárhlutfall 53,5%.
Árshlutareikningur RARIK ohf er gerður samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum.
Horfur
Horfur í rekstri RARIK á árinu 2012 eru góðar. Gert er ráð fyrir að afkoma ársins fyrir fjármagnsliði verði í samræmi við áætlanir, en heildarafkoma ársins ræðst hins vegar að verulegu leyti af þróun á gengi krónunnar og almennu ástandi efnahagsmála. Miðað við gengisþróun undanfarna mánuði og verðbólguspár næstu mánaða má búast við að heildarafkoma fyrirtækisins verði jákvæð á árinu.
Helstu stærðir samstæðureiknings eru sýndar í meðfylgjandi viðhengi