Sigþór Jónsson hefur nú hafið störf sem framkvæmdastjóri Landsbréfa hf. Sigþór er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og hefur lokið prófi í löggildri verðbréfamiðlun. Sigþór hefur mikla reynslu af íslenskum fjármálamarkaði og fjárfestingastarfsemi. Síðast gegndi hann starfi forstöðumanns sérhæfðra fjárfestinga hjá Stefni hf. og leiddi meðal annars uppbyggingu framtakssjóða Stefnis hf. í atvinnuhúsnæði og fyrirtækjum.
Recommended Reading
-
Landsbréf hf. hafa birt ársreikning vegna ársins 2025. Helstu niðurstöður eru þessar: Hagnaður af rekstri Landsbréfa á árinu 2025 var 978 milljónir króna eftir skatta, samanborið við um 1.272...
Read More