Félagið flutti 198 þúsund farþega í millilandaflugi í september og voru þeir 18% fleiri en í september á síðasta ári. Framboðsaukning var 17% á milli ára. Sætanýting nam 81,0% samanborið við 78,0% í september 2011. Farþegum fjölgaði mest á N-Atlantshafsmarkaðinum.
Farþegar í innanlands- og Grænlandsflugi voru rúmlega 28 þúsund í september sem er lækkun um 5% á milli ára. Sætanýting nam 70,0% og jókst um 4,1 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 5% m.v. september á síðasta ári, þar sem fraktvélar í leiguflugsverkefnum voru einni færri en í fyrra. Fraktflutningar jukust um 14% á milli ára. Framboð á gistinóttum hjá hótelum félagsins jókst um 24% frá september á síðasta ári. Herbergjanýting var 76,5% og var 4,1 prósentustigum lakari en í september 2011.
MILLILANDAFLUG | SEP 12 | BR. (%) | ÁTÞ 12 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 198.207 | 18% | 1.597.757 | 15% |
Sætanýting | 81,0% | 3,0 ppt | 81,7% | 2,1 ppt |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000) | 714.056 | 17% | 5.571.273 | 14% |
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG | SEP 12 | BR. (%) | ÁTÞ 12 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 28.233 | -5% | 266.161 | 0% |
Sætanýting | 70,0% | 4,1 ppt | 68,5% | -0,8 ppt |
Framboðnir sætiskm. ('000) | 15.266 | -6% | 143.780 | 2% |
LEIGUFLUG | SEP 12 | BR. (%) | ÁTÞ 12 | BR. (%) |
Flugvélanýting | 100,0% | 7,7 ppt | 92,3% | 0,0 ppt |
Seldir blokktímar | 2.578 | -5% | 24.009 | -10% |
FRAKTFLUTNINGAR | SEP 12 | BR. (%) | ÁTÞ 12 | BR. (%) |
Framboðnir tonnkm. (ATK´000) | 1.313 | 10% | 138.782 | 7% |
Seldir tonnkm. (FTK´000) | 7.911 | 14% | 66.211 | 18% |
HÓTEL | SEP 12 | BR. (%) | ÁTÞ 12 | BR. (%) |
Framboðnar gistinætur | 22.200 | 24% | 226.154 | 14% |
Seldar gistinætur | 16.989 | 18% | 170.312 | 20% |
Herbergjanýting | 76,5% | -4,1 ppt | 75,3% | 3,7 ppt |
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-70