Fjárhagsáætlun ársins 2013 og 3ja ára fjárhagsáætlun Norðurþings


Fjárhagsáætlun ársins 2013 og 3ja ára fjárhagsáætlun Norðurþings voru teknar fyrir í bæjarráði þann 15. nóvember s.l. og vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn sem fer fram þriðjudaginn 20. nóvember n.k.

Fjárhagsáætlun ársins 2013 gerir ráð fyrir tekjuhækkunum sem að mestu tengjast uppbyggingu orkufreks iðnaðar á Bakka. Almennar gjaldskrár hækka ekki en þó er gert ráð fyrir einhverjum gjaldskrábreytingum í samræmi við almennar verðlagsbreytingar.

Gert er ráð fyrir að útgjaldarammi málaflokka A hluta verði um 1.689. milljónir króna með jákvæða niðurstöðu á um 75 milljónir króna. Heildartekjur A hluta verði um 2.212 milljónir króna.

Í 3ja ára fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir stighækkandi tekjum í samræmi við uppbyggingu orkufreks iðnaðar á Bakka og að rekstrarstaðan batni milli ára en þá mest á árinu  2015.

Fjárhagsáætlanir sveitarfélagsins fara fyrir fyrri umræðu í nóvember en síðari umræða og þá með tilheyrandi breytingum, verði það lagt til, fyrir 15. desember.


Attachments

RENTAPRENT_HGY00968_gudbjartur_121115123031_0001.pdf 2012_11_Norðurþing samstaeda  utgspa 2012 og áætlun 2013 - 09 11 2012.pdf 2012_11_Norðurþing fjárhagsáætlun samstæðu 2014 - 2016 samandregid  A5 14 11 2012 til GEJ.pdf
GlobeNewswire

Recommended Reading

  • Nordurthing 6th month annual report