Niðurstaða úr skuldabréfaútboði Reykjavíkurborgar


Reykjavíkurborg var með skuldabréfaútboð í flokki RVK 19 1 þann 21. nóvember 2012. 

Alls bárust tilboð í RVK 19 1 að nafnvirði ISK 720.000.000 á bilinu 2,35% - 3,10%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 260.000.000 á ávöxtunarkröfunni 2,35%. Útistandandi fyrir voru ISK 585.000.000. Heildarstærð flokksins er nú ISK 845.000.000.


Nánari upplýsingar gefur:
Birgir Björn Sigurjónsson
Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar
Sími: 693-9321
Netfang: bbs@rvk.is

GlobeNewswire