Útgáfuáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2013


 

Í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2013 kemur fram að Reykjavíkurborg áætlar lántökur að fjárhæð 3.299 mkr vegna framkvæmda.

Stærð skuldabréfaflokksins RVK 09 1 er 16.090 mkr að nafnverði og stærð skuldabréfaflokksins RVK 19 1 er 1.195 mkr að nafnverði.

Borgarráð samþykkti á fundi sínum þann 10 janúar eftirfarandi tillögu borgarstjóra:

„Borgarráð samþykkir heimild til fjármálastjóra að undirbúa, á grundvelli samþykktar fjárhagsáætlunar 2013, lántökur á árinu 2013 fyrir allt að 3.299 milljón króna. Lántakan verði framkvæmd með stækkun á verðtryggðum skuldabréfaflokkum Reykjavíkurborgar RVK 19 1 og RVK 09 1. Fjármálastjóra verði falið að ákveða m.t.t. markaðsaðstæðna hverju sinni hvort boðið verði í RVK 19 1, RVK 09 1 eða báða flokka samtímis. Janúar–júní 2013 verði stefnt að því að gefa út skuldabréf að verðmæti allt að 1.500 milljónir króna á eftirfarandi útboðsdögum: 30. janúar, 6. mars, 10. apríl, júlí–desember 2013 verði stefnt að því að gefa út skuldabréf að verðmæti allt að 1.799 milljónir króna á eftirfarandi útboðsdögum: 4. september, 9. október, 6. nóvember, 4. desember.“

Tilkynnt verður um fyrirkomulag einstakra útboða í fréttakerfi NASDAQ OMX á Íslandi a.m.k 1 virkum degi fyrir útboð.

Reykjavíkurborg áskilur sér allan rétt til að víkja frá áætlun þessari og mun þá tilkynna um breytingar þar að lútandi í fréttakerfi NASDAQ OMX á Íslandi

 

Nánari upplýsingar gefur:

Birgir Björn Sigurjónsson

Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar

Sími: 411-1111

GlobeNewswire