Reykjavík, 1. febrúar, 2013 – NASDAQ OMX gefur út viðskiptayfirlit mánaðarlega frá kauphöllum sínum á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum. Helstu atriði úr viðskiptayfirliti NASDAQ OMX Iceland fyrir janúar eru eftirfarandi:
- Viðskipti með hlutabréf námu 27.394 milljónum eða 1.245 milljónum á dag. Það er 734% aukning á milli ára, samanborið við 149 milljóna króna veltu á dag í janúar 2012, og 74% aukning frá fyrra mánuði, en viðskipti með hlutabréf í desember námu 715 milljónum á dag.
- Mest voru viðskipti með bréf Icelandair Group (ICEAIR) 7.609 milljónir, með bréf Eimskips (EIM) 5.138 milljónir, og með bréf Marel (MARL) 4.834 milljónir.
- Úrvalsvísitalan (OMXI6) hækkaði um 10,7% milli mánaða og stendur nú í 1173 stigum.
- Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Íslandsbanki með mestu hlutdeildina 32,9% (26% á síðasta ári), Landsbankinn með 24,4% (30,4% á síðasta ári), og MP Banki með 16,9% (13,9% á síðasta ári).
- Viðskipti með skuldabréf námu 170 milljörðum í síðasta mánuði sem samsvarar til 7,7 milljarða veltu á dag. Þetta er 44% lækkun frá janúar á síðasta ári, þá nam veltan 13,7 milljörðum á dag. Þetta er 73% hækkun frá fyrra mánuði, en viðskipti í desember námu 4,5 milljörðum á dag.
- Alls námu viðskipti með ríkisbréf 125,5 milljörðum en viðskipti með íbúðabréf námu 37,2 milljörðum.
- Í janúarmánuði var Landsbankinn með mestu hlutdeildina 22,4% (23,4% á síðasta ári), Straumur fjárfestingabanki með 19,1% (10,8% á síðasta ári) og Íslandsbanki með 18,7% (19,7% á síðasta ári).
Í lok janúar voru hlutabréf 15 félaga skráð á Aðalmarkaði og First North Iceland og nemur heildarmarkaðsvirði þeirra 436 milljörðum króna (samanborið við 293 milljarða í janúar 2012).
Fyrir frekari upplýsingar um tölfræði og tölfræðiáskrift sjá viðhengi og http://nordic.nasdaqomxtrader.com/newsstatistics/
Um NASDAQ OMX
NASDAQ OMX Group, Inc. setti á fót fyrstu rafrænu kauphöllina og hefur ætíð verið frumkvöðull á sviði rafrænna viðskipta. Fyrirtækið eflir efnahagslíf með framsæknum tæknilausnum sem spanna allan viðskiptaferilinn – allt frá áhættustýringu til viðskipta, eftirlits og uppgjörs. Við starfrækjum 24 verðbréfamarkaði, 3 uppgjörshús og 6 verðbréfaskráningar í Bandaríkjunum og Evrópu, sem þjónusta viðskipti með hlutabréf, valrétti, skuldabréf, afleiður, hrávörur, framtíðarsamninga og samsettar vörur. Kerfi NASDAQ OMX geta afgreitt meira en 1 milljón skilaboða á sekúndu á hraða sem er innan við 80 míkrósekúndur á hvert skeyti og státa af 99,999% uppitíma. Þau þjóna meira en 70 kauphöllum í 50 þróuðum löndum og nýmarkaðslöndum og afgreiða 1 af hverjum 10 verðbréfaviðskiptum í heiminum. Verðlaunuð markaðsgögn og vísitölur okkar víðsvegar um heim eru lykilviðmið í fjármálageiranum. Um 3.400 fyrirtæki með heildarmarkaðsvirði í kringum 5,100 milljarða Bandaríkjadala eru skráð á NASDAQ OMX. Nýsköpun þessara fyrirtækja mótar samfélagið sem við búum í – þannig veitum við hugmyndum framtíðarinnar aðgang að fjármagni í dag. Nánari upplýsingar er að finna á www.nasdaqomx.com. Fylgist með okkur á Facebook (http://www.facebook.com/NASDAQ) og Twitter (http://www.twitter.com/nasdaqomx). (Auðkenni: NDAQ og í S&P 500 vísitölunni)
Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur
Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu NASDAQ OMX. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem NASDAQ OMX hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu NASDAQ OMX á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur. Engin trygging er fyrir því að verðbréfaeftirlitið muni veita NASDAQ OMX aðila það vald og leyfi sem hann kynni að sækja.
- # -
NASDAQ OMX tengiliður:
Kristín Jóhanns
kristin.johannsdottir@nasdaqomx.com
525 2844/868 9836