Vísað er til opinberrar tilkynningar FAST-1, kt. 450112-0620, Kirkjusandi
2, 155 Reykjavík,(hér eftir "FAST-1", "útgefandi" eða "félagið") dagsetta 25.
janúar 2013, þar sem upplýst er um kaup dótturfélagsins FAST-2, kt.
700800-2450, Kirkjusandi 2, 155 Reykjavík (hér eftir FAST-2) á fasteigninni
Klettagörðum 13, 104 Reykjavík (hér eftir "eignin").
Í tengslum við kaupin mun félagið draga á áskriftarloforð hluthafa, sbr.
hluthafasamkomulag dagsett 15. maí 2012 og viðauka við það dagsettan 28. júní
2012. Eftir innborgun áskriftarloforða er útgefið hlutafé félagsins
1.358.088.201 kr. að nafnvirði. Breyttan hluthafalista, m.v. 7. febrúar 2013, má
sjá að í töflu 1.
Tafla 1: Hluthafalisti FAST-1 m.v. 7. febrúar 2013
-------------------------------------------------------------------------------
Nafn Kennitala Heimilisfang Hlutir
Gildi - lífeyrissjóður 561195-2779 Sætúni 1 263.076.000
Lífeyrissjóður verslunarmanna 430269-4459 Kringlunni 7 263.076.000
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins 711297-3919 Engjateigi 9 257.986.000
Festa - lífeyrissjóður 571171-0239 Krossmóa 4a 128.596.757
Almenni lífeyrissjóðurinn 450290-2549 Borgartúni 25 96.216.270
Lífeyrissjóður starfsmanna 491098-2529 Sigtúni 42 69.298.378
sveitarfélaga
Tryggingamiðstöðin hf. 660269-2079 Síðumúla 24 69.298.378
Frjálsi lífeyrissjóðurinn 600978-0129 Borgartúni 19 41.922.542
Lífeyrissjóður Vestmannaeyja 580572-0229 Skólavegi 2 31.719.351
Vátryggingafélag Íslands 690689-2009 Ármúla 3 23.916.339
Frjálsi lífeyrissj - Tryggingad 650701-9250 Borgartúni 19 18.903.723
Lífeyrissjóður Vestfirðinga 490671-0809 Pósthólf 154 17.937.254
Lífeyrissjóður bænda NKÞ banki 450396-9829 Borgartúni 19 17.360.562
Lífeyrissjóður starfsmanna 510169-4339 Borgartúni 19 13.502.659
Búnaðarbanka Íslands
Eftirlaunasj atvinnuflugmanna 650376-0809 Borgartúni 19 13.502.659
Líftryggingafélag Íslands 570990-1449 Ármúla 3 8.370.719
Lífeyrisauki 3 520804-9190 Borgartúni 19 6.687.032
Lífeyrisauki 640699-9069 Borgartúni 19 5.529.661
Frjálsi lífeyrissj - Séreign 2 601201-9250 Borgartúni 19 3.472.113
Lífeyrisauki 4 520804-9270 Borgartúni 19 3.086.322
Eftirlaunasj Reykjanesbæjar 510169-3609 Tjarnargötu 12 2.443.338
Lífeyrisauki 640699-9069 Borgartúni 19 2.186.145
-------------------------------------------------------------------------------
SAMTALS 1.358.088.201
Auk þessa hafa verið gefin út ný skuldabréf í flokknum FAST-1 12 1 að nafnvirði
980.360.000 kr. eða 98.036 einingar en hver eining er að nafnvirði 10.000 kr.
Skuldabréfin hafa þegar verið seld. Eftir stækkunina er útgefin stærð flokksins
að nafnvirði 2.400.360.000 kr. Eignin mun standa til tryggingar
skuldabréfaflokknum FAST-1 12 1 líkt og aðrar eignir samstæðunnar.
Hin keypta eign
Klettagarðar 13, 104 Reykjavík eru byggðir árið 2008 sem vöruhús og skrifstofur.
Eignin er skráð 8.927m(2), þar af 5.776m(2) sem vöruhús og 3.150m(2) sem
skrifstofur og verslun. Húsið er lager- og þjónustumiðstöð og er staðsett á
austurhluta lóðarinnar Klettagarðar 13 í Reykjavík. Á lóð hússins eru 70
bílastæði.
LEIGUTAKI OG LEIGUSAMNINGUR
Samhliða kaupunum var skrifað undir tíu ára leigusamning við N1 hf. (hér eftir
"N1" eða "leigutaki") um leigu á öllu húsinu. N1 mun nýta húsið sem heildarlager
fyrir fyrirtækið, en fimm lagerar víðsvegar um borgina verða þar sameinaðir í
fullkomna vörudreifingarmiðstöð auk þess sem félagið mun reka þar skrifstofur og
verslun.Fram kemur að samningunum skuli ljúka án sérstakrar uppsagnar eða
tilkynningar frá samningsaðilum og eru samningarnir óuppsegjanlegir af hálfu
beggja aðila á samningstímanum. Skv. leigusamningunum er framleiga heimil.
Leigutakiá kauprétt að húsnæðinu eftir fimm ár og aftur í lok samningstímans
eftir tíu ár.
Tryggingasafn skuldabréfaflokksins FAST-1 12 1 eftir kaupin
Til tryggingar efndum veitir útgefandi veð í öllum fasteignum samstæðunnar með
afhendingu tryggingarbréfa sem þinglýst er á 1. veðrétt eignanna. Útgefandi er
eini veðhafi eignanna. Eftir kaupin á Klettagörðum 13 telur safn fasteigna
samstæðunnar 4 eignir. Tafla 1 sýnir niðurbrot á virði eignasafnsins sem eftir
stækkun mun mynda tryggingasafn skuldabréfaflokksins. Eftir kaupin er hlutfall
skulda af bókfærðu virði fjárfestingareigna 59,9%
-------------------------------------------------------------------------------
Eign Fasteignamat, hús Fasteignamat, Brunabótamat Bókfært virði
lóð
-------------------------------------------------------------------------------
Skúlagata 21 537.950.000 58.600.000 1.123.000.000 1.288.280.000
Vegmúli 3 241.650.000 42.110.000 382.430.000 967.248.000
Skútuvogur 1 181.350.000 13.920.000 176.950.000 282.536.000
Klettagarðar 13 1.024.300.000 184.400.000 N/A[1] 1.500.000.000
-------------------------------------------------------------------------------
Samtals: 1.985.250.000 299.030.000 N/A[1] 4.038.064.000
-------------------------------------------------------------------------------
[1]Brunabótamat mun liggja fyrir við lokaúttekt hússins sem skal vera lokið
fyrir 1. maí 2013.
Tafla 2: Mat á virði fasteigna útgefanda. Fjárhæðir eru í kr. Bókfært virði
miðast við 31. ágúst 2012 nema fyrir eignina að Klettagörðum 13 sem miðast við
kaupdag sem var 24. janúar 2013.
Allar kröfur til endurgreiðslu skuldabréfanna eru jafnréttháar innbyrðis en
njóta forgangs umfram óveðtryggðar kröfur á hendur FAST-1. Komi til þess að
tryggingar dugi ekki til greiðslu skuldabréfanna nýtur eftirstandandi krafa sömu
rétthæðar og ótryggðar kröfur á hendur útgefanda. Útgefandi ber einn ábyrgð á
greiðslum af skuldabréfunum. Útgefandi hefur ekki skráð lánshæfismat.
Útgefandi lýsir því yfir að framangreint sé tæmandi listi þess sem breyst hefur
í starfsemi eða eignasafni félagsins frá því sem greint er frá í lýsingu
félagsins, dagsettri 27. desember 2012.
Allar nánari upplýsingar um kaupin eða stækkunina veita undirrituð:
Gísli Reynisson, frkvstj. FAST-2 í síma 856-5111
Selma Filippusdóttir, forstöðumaður hjá VÍB í síma 440-4902
[HUG#1676371]
Stækkun skuldabréfaflokksins FAST-1 12 1
| Source: FAST-1 slhf.