Ársreikningur RARIK fyrir árið 2012


 

Samkvæmt rekstrarreikningi var hagnaður á árinu 1.541 milljónir króna. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) var 4.351 milljónir króna eða 38,1% af veltu tíma-bilsins og samanborið við 32,7% á árinu 2011. Handbært fé frá rekstri var 3.257 milljónir króna.

Rekstrarhagnaður af starfsemi RARIK fyrir fjármagnsliði (EBIT) á árinu 2012 var 2.984 milljónir króna sem er rúmlega 34% aukning frá fyrra ári og í samræmi við áætlanir. Vegna veikingar krónunnar og verðlagsbreytinga varð niðurstaða fjármagnsliða neikvæð um tæpar 1.282 milljónir króna, en á árinu 2011 var niðurstaðan neikvæð um 1.233 milljónir króna. Að teknu tilliti til endurmats eigna og tekjuskattsáhrifa þess nemur útreiknaður heildarhagnaður ársins sem færður er á eigið fé 6.180 milljónum króna.

Rekstrartekjur hækkuðu um tæp 6% frá árinu 2011 og voru 11.412 milljónir króna, en rekstrargjöld lækkuðu á milli ára um  1,4% og voru 8.428 milljónir króna.

Fjármagnsgjöld á árinu 2012 voru eins og áður segir neikvæð um 1.282 milljónir króna sem má að stórum hluta rekja til verðbólgu og veikingar krónunnar.

Áhrif Landsnets, sem er hlutdeildarfélag RARIK, á afkomu ársins voru jákvæð um 180 milljónir króna.

Samkvæmt efnahagsreikningi voru heildareignir RARIK í árslok 44.569 milljónir króna, þar af nam endurmat eigna 5.798 milljónum króna. Heildarskuldir námu 19.062 milljónum króna, eigið fé var 25.507 milljónir króna og eiginfjárhlutfall því 57,2% samanborið við 51,9% í árslok 2011.   Stjórn RARIK samþykkir að greiddur verði út arður á árinu 2013 sem nemur allt að 310 milljónum króna.

Ársreikningur RARIK  er gerður samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum. 

Horfur

Horfur í rekstri RARIK á árinu 2013 eru sambærilegar og á liðnu ári, en afkoman ræðst hins vegar af almennri þróun efnahagsmála, verðlagsþróun og gengi krónunnar. Áætlanir ársins 2013 gera ráð fyrir hagnaði af rekstri félagsins í samræmi við langtíma fjárfestingaþörf í dreifikerfinu. Gjaldskrá fyrir dreifingu var hækkuð um áramótin og var hækkunin að jafnaði 8% í dreifbýli en gjaldskrá fyrir alla almenna notkun var óbreytt í þéttbýli. Gera má ráð fyrir að á næstu árum þurfi enn að auka þann mun sem er á gjaldskrám í dreifbýli og þéttbýli. Ekki hefur verið staðið við markmið laga að jafna þann mun með framlagi á fjárlögum og hefur RARIK því haldið aftur af hækkunum í dreifbýli. Gjaldskrá RARIK í dreifbýli er nú umtalsvert hærri en í þéttbýli.

Vextir erlendra lána hafa verið hagstæðir undanfarin misseri og gert er ráð fyrir að þeir haldist sambærilegir út árið 2013.

Gert er ráð fyrir sambærilegum fjárfestingum í dreifikerfum og á fyrra ári. Til viðbótar hefðbundinni endurnýjun í dreifikerfinu verður haldið áfram vinnu við hitaveitu til Skagastrandar og unnið að rannsóknum vegna hitaveitu til Hafnar. Á síðasta ári var gefinn út skuldabréfaflokkur að upphæð 2.000 milljónir, en ákveðið að selja ekki nema helming þeirrar upphæðar. Ekki hefur verið ákveðið hvort fyrirtækið nýti sér heimild til sölu á öllum skuldabréfaflokknum á þessu ári.

 Á árinu 2013 er gert ráð fyrir að orkusala og dreifing aukist lítillega, sem er í samræmi við þróun síðustu ára.

 

Helstu stærðir samstæðureiknings RARIK, allar fjárhæðir í milljónum króna.

 

  Helstu stærðir úr rekstri:                      
    jan-des   jan-des   jan-des   jan-des   jan-des   jan-des
    2012   2011   2010   2009   2008   2007
                         
Rekstartekjur 11.412   10.768   9.694   8.703   7.830   7.436
Rekstrargjöld 8.428   8.547   7.907   6.973   6.851   6.947
Rekstrarhagnaður 2.984   2.221   1.787   1.731   979   489
Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) -1.282   -1.233   56   -1.804   -5.645   -544
Áhrif hlutdeildarfélags 180   189   802   331   -2.877   -178
Hagnaður/tap  fyrir skatta 1.882   1.177   2.646   257   -7.543   -233
Tekjuskattur -341   -164   -127   440   310   42
Hagnaður (Tap) 1.541   1.014   2.518   697   -7.232   -191
                         
Eignir samtals 44.569   37.262   37.032   35.663   31.923   26.442
Eigið fé   25.507   19.327   18.314   15.982   13.942   14.737
Skuldir   19.062   17.935   18.718   19.682   17.982   11.706
                         
Handbært fé frá rekstri 3.257   2.779   2.067   1.847   1.150   885
Greidd vaxtagjöld 630   623   842   749   901   409
                         
EBITDA   4.351   3.520   3.054   2.843   1.884   1.326
Vaxtaþekja 6,91   5,65   3,63   3,80   2,09   3,24
Eiginfjárhlutfall 57,2%   51,9%   49,5%   44,8%   43,7%   55,7%

 

Ársreikningur RARIK 2012 var samþykktur á fundi stjórnar þann 26. febrúar 2013 og heimilaði stjórn birtingu hans í Kauphöll.

Nánari upplýsingar veitir Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK í síma 528-9000.


Attachments

Rarik fréttatilkynning um afkomu 2012.pdf Rarik ársreikningur 2012.pdf
GlobeNewswire