Ársreikningur fagfjárfestasjóðsins OFAN SVÍV vegna ársins 2012


Fagfjárfestasjóðurinn OFAN SVÍV sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf árið 2011, tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2012.

  • Enginn hagnaður varð á rekstri sjóðsins á árinu samkvæmt rekstrarreikningi.
     
  • Hrein eign sjóðsins nam einni milljón króna samkvæmt efnahagsreikningi.
     
  • Ársreikningurinn var endurskoðaður af Ernst & Young hf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2012, efnahagi hans 31. desember 2012 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á árinu 2012, í samræmi við lög um ársreikninga og reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu


Hægt verður að nálgast ársreikning sjóðsins frá og með deginum í dag á heimasíðu Stefnis hf. www.stefnir.is

 

Nánari upplýsingar um ársreikning OFAN SVÍV veitir Flóki Halldórsson, í síma 444 7464.


Attachments

Fagfjárfestasjóðurinn OFAN SVÍV - ársreikningur 2012.pdf
GlobeNewswire