Samkvæmt samningnum tekur Vodafone yfir rekstur allra núverandi dreifikerfa Ríkisútvarpsins, bæði fyrir sjónvarp og útvarp. Rekstur á FM- og langbylgjusendingum Ríkisútvarpsins verður viðvarandi á samningstímanum, en gert er ráð fyrir að rekstur á hliðrænu sjónvarpsdreifikerfi Ríkisútvarpsins leggist af í árslok 2014. Fyrir þann tíma mun Vodafone tryggja að stafrænar útsendingar á tveimur háskerpurásum fyrir Ríkisútvarpið standi 99,8% heimila til boða.
Samningaviðræður vegna nýs sæstrengs Emerald Networks
Samkvæmt tilboðinu fengi Vodafone aðgang að sæstrengnum strax við gangsetningu. Fyrir myndi Vodafone greiða árlegt gjald fyrir notkun, auk upphafsfjárfestingar sem yrði eignfærð og afskrifuð í reikningshaldi Vodafone yfir samningstímann. Verði af lagningunni mun draga verulega úr þörf Vodafone á kaupum á sambærilegri þjónustu af öðrum. Horfur eru á að framkvæmdin muni lækka kostnað Vodafone vegna gagnaflutninga til og frá landinu umtalsvert eftir árið 2015. Heildaráhrif á rekstrarafkomu eru óviss en allar líkur eru á að þau verði jákvæð.
Stefnt er að því að taka sæstrenginn í notkun síðla árs 2014, en með honum yrði rofin einokun í gagnaflutningum til og frá Íslandi.