Þann 16. maí 2013 samþykkti borgarráð heimild til fjármálastjóra að semja við allt að fimm aðila um viðskiptavakt á skuldabréfaflokkum Reykjavíkurborgar í Kauphöll, þ.e. RVK09 1 og RVK 19 1. Aðalmiðlarasamningar voru undirritaðir þann 17. maí 2013. Markmiðið með samningunum er að styrkja aðgang Reykjavíkurborgar að lánsfé og efla verðmyndun á eftirmarkaði.
Frá og með 24. maí 2013 hafa fimm fjármálastofnanir heimild til að kalla sig: „Aðalmiðlara með skuldabréf Reykjavíkurborgar“. Þær eru: Arion banki hf., Íslandsbanki hf., Landsbankinn hf., MP banki hf., og Straumur fjárfestingarbanki hf.
Helstu atriði samningsins eru:
- Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að útboðum Reykjavikurborgar.
- Aðalmiðlari skuldbindur sig til að leggja fram tilboð að lágmarki 100 m.kr. að nafnverði samanlagt í þá flokka sem í boði eru í hverju útboði, að hámarki þó einu sinni í hverjum mánuði.
- Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að sérstökum verðbréfalánum sem Reykjavíkurborg veitir.
- Aðalmiðlari er viðskiptavaki á eftirmarkaði fyrir RVK 09 1 og setur fram kaup- og sölutilboð að lágmarki 50 m.kr. að nafnvirði í NASDAQ OMX á Íslandi fyrir opnun markaðar.
- Aðalmiðlari er viðskiptavaki á eftirmarkaði fyrir RVK 19 1 og setur fram kaup- og sölutilboð að lágmarki 20 m.kr. að nafnvirði í NASDAQ OMX á Íslandi fyrir opnun markaðar.
- Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal aldrei vera meiri en 1%.
- Viðskiptavaki skal endurnýja tilboð innan 15 mínútna eftir að þeim er tekið.
- Ef aðalmiðlari á viðskipti á einum viðskiptadegi fyrir samtals 150 m.kr. að nafnvirði með RVK 09 1 er honum heimilt að víkja út frá hámarksmun kaup- og sölutilboða.
- Ef aðalmiðlari á viðskipti á einum viðskiptadegi fyrir samtals 60 m.kr. að nafnvirði með RVK 19 1 er honum heimilt að víkja út frá hámarksmun kaup- og sölutilboða.
Viðskiptavakt Arion banka hf., Íslandsbanka hf., Landsbanka hf., MP banka hf., Straums fjárfestingarbanka hf. gildir frá og með 24. maí 2013 til 24.maí 2014.
Nánari upplýsingar gefur:
Birgir Björn Sigurjónsson
Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar
Sími: 693-9321