Fjárhagsáætlun Norðurþings skilar jákvæðri rekstrarniðurstöðu á árinu 2014. Endurskipulagning og frekari hagræðingar í rekstri og takmarkaðar fjárfestingar munu einkenna umhverfi sveitarfélagsins fyrir utan kraft sem settur er í uppbyggingaráform orkufreks iðnaðar á Bakka.
Fjárhagsáætlun ársins 2014 og 3ja ára fjárhagsáætlun var samþykkt í bæjarstjórn þriðjudaginn 17. desember.
Samkvæmt fjárhagsáætlun ársins 2014 er gert ráð fyrir að A - hluti skili tekjuafgangi fyrir fjármagnsliði upp á 261.035 m.kr. en niðurstaða samstæðu sveitarfélagsins skilar tekjuafgangi að upphæð 256.491 m.kr. Að teknu tilliti til fjármagnsliða, skatta og hlutdeild minnihluta er afkoman fyrir A - hluta jákvæð um 145.724 m.kr. og fyrir samstæðu sveitarfélagsins um 81,6 m.kr. Hreint veltufé frá rekstri er 363,8 m.kr. fyrir A - hluta og 521,9 m.kr fyrir samstæðu Norðurþings.
Sveitarfélagið Norðurþing hefur undanfarin misseri unnið hörðum höndum að atvinnuuppbyggingu á Bakka og standa vonir til að framkvæmdir geti hafist á árinu 2014. Framkvæmdir við kísilver í landi Bakka mun gjörbreyta tekjumyndun samstæðu sveitarfélagsins og um leið snúa neikvæðri íbúaþróun við til framtíðar.
Áfram er unnið að fjárhagsviðmiðum sveitarfélaga sem bundin eru í nýjum sveitarstjórnarlögum sem tóku gildi 1. janúar 2012. Í álagningu sveitarfélagsins fyrir árið 2014 eru ekki lagðar fram breytingar til hækkunar á sköttum íbúa sveitarfélagsins.
Fjárhagsáætlanagerð sveitarfélagsins hefur undanfarin ár verið um margt öðruvísi og endurspeglast það mest í því stóra verkefni um atvinnuuppbyggingu á Bakka.
Nánari upplýsingar:
Bergur Elías Ágústsson
bæjarstjóri Norðurþings
464-6100