Við kaup FAST-1 slhf. á HTO ehf. tæplega fimmfaldast verðmæti fjárfestingaeigna FAST-1 og væntar tekjur aukast ennfremur allt að fimmfalt. HTO ehf. er eigandi að eignunum við Borgartún 12-14 og Katrínartún 2 og er heildarflatarmál eignanna tæplega 57 þúsund fermetrar að bílastæðakjallara meðtöldum, en fyrir kaupin voru alls rúmlega 17 þúsund fermetrar í eigu FAST-1. Alls eru rúmlega 30 leigutakar í eignum HTO ehf. en fyrir kaupin voru 6 leigutakar í fjórum eignum FAST-1. Helstu leigutakar hjá HTO ehf. eru meðal annars Reykjavíkurborg, Reiknistofa bankanna, Fjármálaeftirlitið og Olís. Frekari upplýsingar veitir Haukur Skúlason, stjórnarformaður FAST-1, s: 844 4778 og haukurs@islandssjodir.is [HUG#1760666]
Nánari upplýsingar um kaup FAST-1 slhf. á HTO ehf.
| Source: FAST-1 slhf.