Ársreikningur RARIK fyrir árið 2013

Hagnaður RARIK á árinu 2013 var 1,9 milljarðar og jókst um 26% á milli ára, en hagnaður fyrir fjármagnsliði (EBIT) lækkaði um 10%.


Samkvæmt rekstrarreikningi var hagnaður á árinu 1.947 milljónir króna sem er heldur meiri en gert var ráð fyrir í áætlunum. Hækkun frá árinu 2012 var rúm 26% en þá var hagnaður ársins 1.541 milljón króna. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) var 4.300 milljónir króna eða 36,5% af veltu tímabilsins, samanborið við 38,1% á árinu 2012. Handbært fé frá rekstri var 3.541 milljón króna.

Rekstrarhagnaður af starfsemi RARIK fyrir fjármagnsliði (EBIT) á árinu 2013 var 2.684 milljónir króna sem er rúmlega 10% lækkun frá fyrra ári. Talsverð styrking krónunnar gerði það að verkum að þrátt fyrir nokkra verðbólgu varð niðurstaða fjármagnsliða einungis neikvæð um 867 milljónir króna, en á árinu 2012 var niðurstaðan neikvæð um 1.282 milljónir króna.

Rekstrartekjur hækkuðu um rúm 3% frá árinu 2012 og voru 11.793 milljónir króna og rekstrargjöld hækkuðu á milli ára um rúm 8% og voru 9.108 milljónir króna. Hækkun gjalda umfram verðlag má að verulegu leyti rekja til 18% hækkunar á afskriftum.

Áhrif Landsnets, sem er hlutdeildarfélag RARIK, á afkomu ársins voru jákvæð um 491 milljón króna á móti 180 milljónum á árinu 2012.

Samkvæmt efnahagsreikningi námu heildareignir RARIK í árslok 46.787 milljónum króna. Heildarskuldir námu 19.643 milljónum króna, eigið fé var 27.144 milljónir króna og er eiginfjárhlutfall því 58% samanborið við 57,2% í árslok 2012.

Ársreikningur RARIK ohf. er gerður samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum. 

Horfur

Horfur í rekstri RARIK á árinu 2014 eru góðar, en gert er ráð fyrir að hagnaður ársins verði svipaður og á árinu 2013. Áætlanir ársins 2014 gera ráð fyrir að forgangsorka og dreifing aukist lítillega, sem er í samræmi við þróun undanfarinna ára. Gjaldskrá fyrir dreifingu var hækkuð í upphafi ársins 2014 um 4,5% í dreifbýli en gjaldskrá fyrir alla almenna notkun var óbreytt í þéttbýli. Gera má ráð fyrir að á næstu árum þurfi enn að auka þann mun sem er á gjaldskrám í dreifbýli og þéttbýli. Samkvæmt fjárlögum 2014 áforma stjórnvöld að auka verulega fjármagn til verðjöfnunar milli dreifbýlis og þéttbýlis og þar með jafna þennan mun að mestu á næstu þremur árum.

Ný hitaveita var tekin í notkun á árinu á Skagaströnd. Gjaldskrár hitaveitna RARIK breyttust ekki á síðasta ári, en gert er ráð fyrir að gjaldskrár muni fylgja verðlagi á árinu 2014. Orkusalan gerir ráð fyrir að hækka verðskrá sína í samræmi við hækkun Landsvirkjunar á heildsöluverði til Orkusölunnar.

Vextir erlendra lána hafa verið hagstæðir undanfarin misseri og gert er ráð fyrir að þeir haldist sambærilegir út árið 2014.

Gert er ráð fyrir sambærilegum fjárfestingum í dreifikerfum og á fyrra ári, en minni framkvæmdum í hitaveitum. Fjárfestingar Orkusölunnar verða svipaðar og á síðasta ári. Á síðasta ári var gefinn út skuldabréfaflokkur að upphæð 1.000 milljónir á hagkvæmum kjörum, en á næstu þremur árum er þörf á umtalsverðri endurfjármögnun. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um að hve miklu leyti það verður gert á árinu 2014, en það ræðst af aðstæðum á fjármálamarkaði.

 

Helstu stærðir samstæðureiknings RARIK, allar fjárhæðir í milljónum króna.

  Helstu stærðir úr rekstri:                      
    jan-des   jan-des   jan-des   jan-des   jan-des   jan-des
    2013   2012   2011   2010   2009   2008
                         
Rekstartekjur 11.793   11.412   10.768   9.694   8.703   7.830
Rekstrargjöld 9.108   8.428   8.547   7.907   6.973   6.851
Rekstrarhagnaður 2.684   2.984   2.221   1.787   1.731   979
Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) -867   -1.282   -1.233   56   -1.804   -5.645
Áhrif hlutdeildarfélags 491   180   189   802   331   -2.877
Hagnaður/tap  fyrir skatta 2.309   1.882   1.177   2.646   257   -7.543
Tekjuskattur -362   -341   -164   -127   440   310
Hagnaður (Tap) 1.947   1.541   1.014   2.518   697   -7.232
                         
Eignir samtals 46.787   44.569   37.262   37.032   35.663   31.923
Eigið fé   27.144   25.507   19.327   18.314   15.982   13.942
Skuldir   19.643   19.062   17.935   18.718   19.682   17.982
                         
Handbært fé frá rekstri 3.541   3.257   2.779   2.067   1.847   1.150
Greidd vaxtagjöld 657   630   623   842   749   901
                         
EBITDA   4.300   4.351   3.520   3.054   2.843   1.884
Vaxtaþekja 6,54   6,91   5,65   3,63   3,80   2,09
Eiginfjárhlutfall 58,0%   57,2%   51,9%   49,5%   44,8%   43,7%

 

 

Ársreikningur RARIK 2013 var samþykktur á fundi stjórnar þann 27. febrúar 2014 og heimilaði stjórn birtingu hans í Kauphöll.

Nánari upplýsingar veitir Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK í síma 528-9000.


Attachments

Ársreikningur RARIK 2013 Samstæða.pdf Fréttatilkynning um afkomu RARIK 311213.pdf
GlobeNewswire