Samkeppniseftirlitið hefur veitt FAST-1 slhf. undanþáguheimild til að framkvæma samruna við HTO ehf. á meðan eftirlitið er með hann til umfjöllunar. HTO ehf. er eigandi að eignunum við Borgartún 12-14 og Katrínartún 2. Eftir kaupin verður eignasafn FAST-1 alls um 74 þúsund fermetrar og fjöldi leigutaka verður rúmlega 30. Stærð FAST-1 mun tæplega fimmfaldast við kaupin. Frekari upplýsingar veitir Haukur Skúlason, stjórnarformaður FAST-1 í síma 844 4778 og haukur@islandssjodir.is [HUG#1766249]
Samkeppniseftirlitið heimilar FAST-1 slhf. að framkvæma samruna við HTO ehf.
| Source: FAST-1 slhf.