Skipti hf. selja Síminn Danmark


Telia Danmark, dótturfélag TeliaSonera, hefur keypt Síminn Danmark, dótturfélag Símans í Danmörku.

Orri Hauksson, forstjóri Símans:  „Salan á Síminn Danmark er liður í þeirri stefnu okkar að einbeita okkur að starfseminni á Íslandi, sem kom meðal annars fram í skipulagsbreytingunum sem gerðar voru á samstæðunni í febrúar sl.  Þá kynntum við að til stæði að sameina rekstur Símans og Skipta undir heiti Símans, með það fyrir augum að ná fram aukinni hagkvæmni í rekstrinum.“ 

Síminn Danmark, sem stofnaður var í Danmörku í kjölfar kaupa Símans á tveimur fjarskiptafyrirtækjum þar í landi árið 2007, hefur sérhæft sig í lausnum á fyrirtækjamarkaði. Tekjur Síminn Danmark námu 83,4 milljónum danskra króna á síðasta ári, sem eru tæplega 1,750 milljónir íslenskra. Um 2,880 fyrirtæki eru í viðskiptum við Síminn Danmark, þar starfa 42 starfsmenn, sem verða nú hluti af starfsmannahópi Telia.

Kaupverð er trúnaðarmál. Salan hefur ekki veruleg áhrif á efnahag Skipta hf. en mun hafa jákvæð áhrif á sjóðstreymi.

 

Frekari upplýsingar veitir Pétur Þ. Óskarsson, yfirmaður samskipta Símans hf.

petur@siminn.is, s. 863-6075.

Recommended Reading