Reykjavík, 1. apríl, 2014 – NASDAQ OMX (NASDAQ: NDAQ) tilkynnir í dag um fjölgun félaga í Úrvalsvísitölunni, OMX Iceland 6 (OMX6ISK) úr sex félögum í átta. Breytingin tekur gildi við opnun markaða 1. júlí 2014 í tengslum við venjubundna hálfsársendurskoðun á samsetningu vísitölunnar. Á sama tíma breytist nafn og auðkenni vísitölunnar til þess að endurspegla aukinn fjölda félaga. Nýtt nafn vísitölunnar verður OMX Iceland 8 (OMXI8).
„Uppbyggingu íslenska hlutabréfamarkaðarins miðar vel. Nýlegar skráningar hafa breytt markaðnum og skráningarhorfur eru góðar. Fjölgun félaga í Úrvalsvísitölunni OMX Iceland 8 endurspeglar þá þróun sem hefur orðið á undanförnum árum,” sagði Magnús Harðarson, aðstoðarforstjóri NASDAQ OMX Iceland.
OMX Iceland 8 vísitalan, Úrvalsvísitalan, er leiðandi vísitala NASDAQ OMX Iceland og samanstendur af átta veltumestu hlutabréfunum á markaðnum. Vægi félaga í OMX Iceland 8 vísitölunni ræðst af flotleiðréttu markaðsvirði, sem þýðir að einungis það hlutafé sem ætla má að myndi grunn að virkum viðskiptum í Kauphöllinni er hluti af vísitölunni. Frekari upplýsingar um aðferðafræði vísitölunnar má finna hér https://indexes.nasdaqomx.com/.
#
UM NASDAQ OMX Global Indexes
NASDAQ OMX Global Indexes hafa búið til framsæknar, markaðsleiðandi og gagnsæjar vísitölur frá 1971. Í dag spannar vísitöluframboð okkar landsvæði og eignaflokka og innihalda fjölbreyttar afurðir eins og Dividend Achievers, Global, Nordic, Green Economy, Sharia og hrávöruvísitölur. Við bjóðum stöðugt upp á ný tækifæri fyrir fjármálatengdar vörur og breitt svið vörutegunda til að fjárfesta í, sem og fyrir sjóðsstjóra fyrir mælingu áhættu og árangurs. NASDAQ OMX Global Indexes veitir einnig völdum fjármálastofnunum sérsniðna þjónustu og lausnir fyrir vísitölur. Fyrir frekari upplýsingar um NASDAQ OMX Global Indexes sjá indexes.nasdaqomx.com. Hægt er að nálgast dagleg gildi NASDAQ OMX vísitalna, virði og söguleg gögn hjá NASDAQ OMX Global Index Watch og NASDAQ OMX Index Data Service.
NASDAQ OMX Global Indexes has been creating innovative, market-leading, transparent indexes since 1971. Today, our index offering spans geographies and asset classes and includes diverse families such as the Dividend Achievers, Global, Nordic, Green Economy, Sharia and Commodity Indexes. We continuously offer new opportunities for financial product sponsors across a wide-spectrum of investable products and for asset managers to measure risk and performance. NASDAQ OMX Global Indexes also provides custom index services and design solutions to selected financial organizations. For more information about NASDAQ OMX Global Indexes, visit indexes.nasdaqomx.com.
Daily index values, weightings and historical data for NASDAQ OMX indexes are available via NASDAQ OMX Global Index Watch and NASDAQ OMX Global Index Data Service.
Um NASDAQ OMX Group
NASDAQ OMX (NASDAQ:NDAQ) er leiðandi þjónustuveitandi á sviði verðbréfaviðskipta, kauphallartækni, upplýsingaþjónustu og þjónustu við skráð fyrirtæki í sex heimsálfum. NASDAQ OMX gerir viðskiptavinum sínum kleift að skipuleggja, hagræða og framkvæma framtíðarsýn sína í viðskiptum af öryggi, með margreyndri tækni sem veitir gagnsæi og innsýn í nútíma alþjóðlega fjármálamarkaði. NASDAQ OMX er frumkvöðull í rafrænum kauphallarviðskiptum, en tækni þess er notuð á yfir 70 mörkuðum í 50 löndum og knýr um það bil ein af hverjum 10 viðskiptum í heiminum. NASDAQ OMX er heimili meira en 3,300 skráðra fyrirtækja að markaðsvirði yfir 8 billjón Bandaríkjdala. Fyrir meiri upplýsingar, heimsæktu www.nasdaqomx.com
Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur
Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu NASDAQ OMX. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem NASDAQ OMX hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu NASDAQ OMX á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur. Engin trygging er fyrir því að verðbréfaeftirlitið muni veita NASDAQ OMX aðila það vald og leyfi sem hann kynni að sækja.
Upplýsingar:
Kristín Jóhannsdóttir
kristin.johannsdottir@nasdaqomx.com
525 2844