Niðurstaða úr skuldabréfaútboði Reykjavíkurborgar


Reykjavíkurborg var með skuldabréfaútboð í flokki RVK 19 1 þann 9. apríl 2014. 

 

Alls bárust tilboð í RVK 19 1 að nafnvirði ISK 1.080.000.000 á bilinu 2,90% - 3,45%. Ákveðið var að hafna öllum tilboðum að þessu sinni. Heildarstærð flokksins er því óbreytt ISK 3.215.000.000 að nafnvirði.

 

 

Nánari upplýsingar gefur:

Birgir Björn Sigurjónsson

Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar

Sími: 693-9321
Netfang: bbs@rvk.is

GlobeNewswire