VIÐSKIPTAYFIRLIT APRÍL 2014 - NASDAQ OMX ICELAND


Reykjavík, 2. maí, 2014 – NASDAQ OMX gefur út viðskiptayfirlit mánaðarlega fyrir kauphallir sínar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum. Helstu atriði úr viðskiptayfirliti NASDAQ OMX Iceland fyrir apríl eru eftirfarandi:    

·       Viðskipti með hlutabréf í aprílmánuði námu 30.700 milljónum eða 1.706 milljónum á dag. Það er 111% hækkun frá fyrri mánuði, en í mars námu viðskipti með hlutabréf 808 milljónum á dag. Þetta er 26% hækkun á milli ára (viðskipti í apríl 2013 námu 1.356 milljónum á dag).

·       Mest voru viðskipti með hlutabréf HB Granda (GRND), 14.297 milljónir (þar af 13.628 milljónir í útboði með hlutabréf félagsins), Icelandair Group (ICEAIR), 3.952 milljónir, N1 (N1), 3.211 milljónir, Marel (MARL), 1.671 milljón og VÍS, 1.503 milljónir.

·       Úrvalsvísitalan (OMXI6) hækkaði um 0,5% milli mánaða og stendur nú í 1.167,8 stigum.

·       Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Íslandsbanki með mestu hlutdeildina 25,6% (19,0% á árinu), Arion banki með 25,4% (30,0% á árinu), og Landsbankinn með 17,9% (24,4% á árinu).

·       Viðskipti með Landsbréf – LEQ kauphallarsjóðinn í aprílmánuði námu 30,0 milljónum, samanborið við 127,5 milljónir í mars. 

Í lok apríl voru hlutabréf 18 félaga skráð á Aðalmarkaði og First North Iceland og nemur heildarmarkaðsvirði þeirra 601 milljarði króna (samanborið við 472 milljarða í apríl 2013).

·       Viðskipti með skuldabréf námu 85 milljörðum í síðasta mánuði sem samsvarar 4,7 milljarða veltu á dag. Þetta er 51% lækkun frá fyrri mánuði (viðskipti í mars námu 9,6 milljörðum á dag), og 16% lækkun á  milli ára (viðskipti í apríl 2013 námu 5,6 milljörðum á dag).

·       Alls námu viðskipti með ríkisbréf 70,4 milljörðum en viðskipti með íbúðabréf námu 11,5 milljörðum. Mest voru viðskipti með RIKB 19 0226, 19,9 milljarðar, RIKB 20 0205, 10,0 milljarðar, RIKS 21 0414, 9,4 milljarðar og RIKB 16 1013, 8,9 milljarðar.

·       Á skuldabréfamarkaði var Landsbankinn með mestu hlutdeildina 21,6% (20,6% á árinu), MP banki með 21,5% (20,4% á árinu) og Arion banki með 17,8% (17,7% á árinu).

·       Aðalvísitala skuldabréfa (NOMXIBB) hækkaði um 1,84% í apríl og stendur í 1.038,9 stigum.  Óverðtryggða skuldabréfavísitala Kauphallarinnar (NOMXINOM) hækkaði um 0,72% í mánuðinum en sú verðtryggða (NOMXIREAL) hækkaði um 2,24%.  Fyrir frekari upplýsingar um tölfræði og tölfræðiáskrift sjá http://nordic.nasdaqomxtrader.com/newsstatistics/

#

Um NASDAQ OMX Group

NASDAQ OMX (NASDAQ:NDAQ) er leiðandi þjónustuveitandi á sviði verðbréfaviðskipta, kauphallartækni, upplýsingaþjónustu og þjónustu við skráð fyrirtæki í sex heimsálfum. NASDAQ OMX gerir viðskiptavinum sínum kleift að skipuleggja, hagræða og framkvæma framtíðarsýn sína í viðskiptum af öryggi, með margreyndri tækni sem veitir gagnsæi og innsýn í nútíma alþjóðlega fjármálamarkaði. NASDAQ OMX er frumkvöðull í rafrænum kauphallarviðskiptum, en tækni þess er notuð á yfir 70 mörkuðum í 50 löndum og  knýr um það bil ein af hverjum 10 viðskiptum í heiminum. NASDAQ OMX er heimili meira en 3,400 skráðra fyrirtækja að markaðsvirði yfir 8,5 billjón Bandaríkjdala. Fyrir meiri upplýsingar, heimsæktu www.nasdaqomx.com

Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur

Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu NASDAQ OMX. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem NASDAQ OMX hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu NASDAQ OMX á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur. Engin trygging er fyrir því að verðbréfaeftirlitið muni veita NASDAQ OMX aðila það vald og leyfi sem hann kynni að sækja.

 

         Fjölmiðlasamskipti:
         Kristín Jóhannsdóttir
         kristin.johannsdottir@nasdaqomx.com
         525 2844


Attachments

2014_0502_Viðskiptayfirlit apríl 2014.pdf