Fjarskipti hf. : Vegna ákvörðunar Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA)


Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) tilkynnti í dag um formlega rannsókn á hugsanlegri ríkisaðstoð í tengslum við útboð leigusamninga um afnot af ljósleiðara, áður í umsjá NATO, sem Vodafone tók þátt í  árið 2008.  
 
Samanber fyrri tilkynningu Fjarskipta hf., dags. 28. janúar 2014, eru Fjarskipti ekki beinn aðili málsins, sem rekið er á milli Eftirlitsstofnunar EFTA og íslenska ríkisins. Í janúar síðastliðnum ógilti EFTA-dómsstóllinn fyrri ákvörðun ESA um að ekki þætti tilefni til að opna á slíka rannsókn. Ákvörðunin nú felur ekki í sér endanlega niðurstöðu í málinu og gæti ESA að lokinni rannsókn komist að þeirri niðurstöðu að ekki sé um að ræða ríkisaðstoð eða að ríkisaðstoðin sé í samræmi við EES samninginn að hluta eða öllu leyti.
 
Það er afstaða Fjarskipta að ekki sé um ólögmæta ríkisaðstoð að ræða þar sem samningur félagsins um leigu á téðum ljósleiðara  hafi verið gerður á grundvelli útboðs. Stjórnendur félagsins munu fylgjast með framvindu rannsóknarinnar og vera málsaðilum innan handar sé þess óskað. 
 
Nánari upplýsingar verða veittar eftir því sem málinu vindur fram.
GlobeNewswire

Recommended Reading