Leiðrétting - Veðskuldabréfasjóðurinn Virðing - Árshlutauppgjör júní 2014 - Frétt birt 2014-08-22 16:30:36


Leiðrétting:

Eftir birtingu á árshlutareikningi Veðskuldabréfasjóðs Virðingar fyrir tímabilið 1. janúar – 30. júní 2014 komu fram mistök í texta í síðustu málsgrein skýrslu stjórnar.  Þess ber að geta að þessi tilkynning vegna leiðréttingar á eingöngu við um texta í skýrslu stjórnar og hefur leiðréttingin ekki með uppgjörið sjálft að gera. 

Á stjórnarfundi Rekstrarfélags Virðingar var árshlutareikningur sjóðsins samþykktur en rangs sjóðs var getið í þeirri skýrslu er stjórnin ritaði undir.

Það sem leiðrétt er:
Stjórn Fagfjárfestasjóðsins ORK og framkvæmdastjóri Rekstrarfélags Virðingar hf. staðfesta hér með árshlutareikning félagsins fyrir tímabilið janúar – júní 2014 með undirritun sinni.

Hið rétta er:
Stjórn Veðskuldabréfasjóðs Virðingar og framkvæmdarstjóri Rekstrarfélags Virðingar hf. staðfesta hér með árshlutareikning sjóðsins fyrir tímabilið janúar – júní 2014 með undirritun sinni.

Um er að ræða mistök í ritvinnslu.

 

 

Veðskuldabréfasjóðurinn Virðing sem er í rekstri Rekstrarfélags Virðingar hf. gaf út skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2014.

  • Töluverðar breytingar urðu á rekstri sjóðsins á fyrri hluta ársins.
     
  • Sjóðurinn hefur verið í rekstri hjá Rekstrarfélagi verðbréfasjóða ÍV undanfarin ár en í mars s.l. var gengið frá samningi um að reksturinn færðist alfarið til Rekstrarfélags Virðingar.
     
  • Sjóðurinn hefur frá því í nóvember 2013 verið fullfjárfestur og eftir það hefur ekki verið um frekari fjárfestingar að ræða í veðskuldabréfum og sjóðurinn í raun kominn í endurgreiðluferli. Í maí gaf sjóðurinn út skuldabréfaflokk að nafnvirði 10,8 milljarða króna og voru bréfin afhent hlutdeildarskírteinishöfum í stað hlutdeildarskírteina auk þess sem eigendur hlutdeildarskírteina fengu ríflega 400 milljóna króna greiðslu í peningum vegna rúmrar lausafjárstöðu sjóðsins.
     
  • Samkvæmt stefnu sjóðsins er laust fé greitt til eigenda, það fé er til komið vegna afborgana og uppgreiðslna á undirliggjandi veðskuldabréfum í eigu sjóðsins. Slíkt er heimilt samkvæmt skilmálum skuldabréfa sjóðsins á hverjum vaxtagjalddaga sem eru fjórir á ári. Það ákvæði í útgáfulýsingu skuldabréfaflokksins VEDS1 14 01 nýtti sjóðurinn sér á vaxtagjalddaga bréfsins þann 15. ágúst síðastliðinn og greiddi 450 milljónir króna inn á höfuðstól skuldabréfanna og stefnt er á að greiða vaxtaauka á fyrsta vaxtagjalddaga ársins 2015.
     
  • Hagnaður af rekstri sjóðsins á fyrstu sex mánuðum ársins nam 470 milljónum króna samkvæmt rekstrarreikningi.
     
  • Heildareignir sjóðsins námu 10.847 milljónum króna í lok tímabilsins samkvæmt efnahagsreikningi.
     
  • Hrein eign sjóðsins var neikvæð um 25,5 milljónir króna samkvæmt efnahagsreikningi. Um er að ræða tímabundna stöðu vegna útborgunar til hlutdeildarskírteinishafa í tengslum við skuldabréfaútgáfuna en vegna jákvæðs vaxtamunar verður hrein eign sjóðsins orðin jákvæð fyrir lok október 2014.
     
  • Árshlutareikningurinn var kannaður af Rýni endurskoðun ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Í áritun endurskoðenda vegna könnunar kemur fram að ekkert bendi til annars en að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á tímabilinu, efnahagi hans 30. júní 2014 og breytingu á handbæru fé á tímabilinu, í samræmi við lög um ársreikninga og settar reikningsskilareglur.


Nánari upplýsingar um árshlutareikning Veðskuldabréfasjóðsins Virðingar veitir starfsfólk Rekstrarfélags Virðingar í síma 585 6500.

 


Attachments

Árshlutareikningur Veðskuldabréfasjóður Virðingar 30.6.2014.pdf