Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á tveimur víxlum til 4 og 6 mánaða. Hvor
flokkur getur að hámarki orðið 1,5 ma. kr. að nafnvirði. Útboðinu var þannig
háttað að boðið var í magn á fyrirfram ákveðnu verði. 4 mánaða víxillinn á
5,75% flötum vöxtum (verð: 98,0886) og 6 mánaða víxillinn á 5,85% flötum vöxtum
(verð: 97.1275).
Tilboðum var tekið í 4 mánaða víxilinn að fjárhæð 260 milljónir króna að
nafnvirði og að fjárhæð 740 milljónir króna í 6 mánaða víxilinn. Fyrir útboðið
voru útistandandi víxlar Íslandsbanka að fjárhæð 4,92 ma. kr.
Bréfin voru seld til breiðs hóps fjárfesta. Stefnt er að töku víxlanna til
viðskipta í Nasdaq OMX Iceland þann 19. september næstkomandi.
Nánari upplýsingar veita:
* Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma
440 3187 / 844 3187.
* Upplýsingafulltrúi - Dögg Hjaltalín, dogg.hjaltalin@islandsbanki.is og í
síma 440 3925.
[HUG#1855151]