Lánasjóður sveitarfélaga - Niðurstaða úr skuldabréfaútboði


Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokkum LSS150224 og LSS150434 þann 30. september 2014. Uppgjör viðskipta fer fram föstudaginn 3. október 2014.  

Alls bárust tilboð í LSS150224 að nafnvirði ISK 1.100.000.000 á bilinu 3,48% - 3,72%.  Ákveðið var að afþakka öll tilboð í LSS150224 að þessu sinni. Útistandandi fyrir voru ISK 31.789.500.000. Heildarstærð flokksins er nú ISK 31.789.500.000.

Alls bárust tilboð í LSS150434 að nafnvirði ISK 1.890.000.000 á bilinu 3,40% - 3,64%.  Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 500.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,40%. Útistandandi fyrir voru ISK 15.874.352.565. Heildarstærð flokksins er nú ISK 16.374.352.565.  

Nánari upplýsingar veitir: Egill Skúli Þórólfsson, Sími: 515 4947, e-mail: egill@lanasjodur.is