Síminn og Skipti sameinast


Samkeppniseftirlitið hefur heimilað sameiningu Símans hf. og Skipta hf. og verður rekstur félaganna sameinaður undir nafni Símans. Tilkynnt var um áform um sameiningu í febrúar í fyrra með fyrirvara um heimild Samkeppniseftirlitsins. Míla ehf. og Skjárinn ehf. , sem áður voru í eigu Skipta, verða nú í eigu Símans hf. auk þeirra dótturfélaga sem áður voru í eigu Símans og Skipta en þau eru Sensa, Staki, Talenta, On-Waves og Radíómiðun.

Við sameininguna verður til öflugt rekstrarfélag með starfsemi í fjarskiptum, upplýsingatækni og afþreyingu. Við breytinguna nú  verður sjálfstæði Mílu enn aukið sem rekstraraðili grunnfjarskiptakerfis og tryggt að markmið sáttar sem Skipti hf., Síminn hf. og Míla ehf. gerðu við Samkeppniseftirlitið í mars 2013 nái fram að ganga. Síminn mun fara með minnihluta í stjórn Mílu eftir sameininguna.

Orri Hauksson, forstjóri Símans: „Það er ánægjulegt að ljúka þessu ferli og nauðsynlegur áfangi í endurskipulagningu samstæðunnar. Fjarskiptamarkaðurinn er í örri þróun og það er mikilvægt að fyrirtækin séu í stakk búin til að bregðast hratt við breytingum til að geta betur mætt þörfum viðskiptavina á hagkvæman hátt. Nú liggur skipulag samstæðunnar fyrir og hægt að halda áfram að þróa fyrirtækið  til móts við nýja tíma.“

 

Frekari upplýsingar:

Orri Hauksson, forstjóri Símans, 660-6003.

Pétur Þ. Óskarsson, yfirmaður samskipta Símans, s. 863-6075.

Recommended Reading