Garðabær – stækkun skuldabréfaflokks


Garðabær, í samstarfi við Markaði Íslandsbanka, mun þann 27. febrúar næstkomandi bjóða til sölu skuldabréfið GARD 13 1 sem er stækkanlegur skuldabréfaflokkur sveitarfélagsins. Sala hinna nýju skuldabréfa fer fram í samræmi við ákvörðun bæjarstjórnar Garðabæjar 19. febrúar og verður salan með útboðsfyrirkomulagi. Boðin verða til sölu skuldabréf allt að 400 milljónir króna að nafnvirði. Áhugasömum fjárfestum er bent á að hafa samband við Verðbréfamiðlun Íslandsbanka. Tekið verður við tilboðum til klukkan 14:00 föstudaginn 27. febrúar n.k. Garðabær áskilur sér rétt til að hafna öllum tilboðum að hluta til eða í heild. Gert er ráð fyrir skuldabréfin verði tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland þann 12. mars n.k.

 

Allar nánari upplýsingar varðandi skuldabréfin og skuldabréfaútboðið eru veittar af Verðbréfamiðlun Íslandsbanka.

Recommended Reading