Veðskuldabréfasjóðurinn Virðing sem er í rekstri Rekstrarfélags Virðingar hf. gaf út skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2014.
-
Hagnaður af rekstri sjóðsins nam 568,7 milljónum króna samkvæmt rekstrarreikningi á árinu 2014.
-
Hrein eign sjóðsins nam 73,6 milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi.
- Ársreikningurinn var endurskoðaður af Rýni endurskoðun ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2014, efnahag hans 31. desember 2014 og breytingu á hreinni eign á árinu 2014, í samræmi við lög um ársreikninga og reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða og að skýrsla stjórnar hafi að geyma þær upplýsingar, komi þær ekki fram annars staðar í ársreikningnum, sem þar ber að veita í samræmi við lög um ársreikninga.
Nánari upplýsingar um ársreikning Veðskuldabréfasjóðsins Virðingar veitir starfsfólk Rekstrarfélags Virðingar í síma 5856500.